Úrval - 01.11.1974, Side 82

Úrval - 01.11.1974, Side 82
80 URVAL svo sem eíns og að þurrka vel íóta- búnað sinn á nóttunni — það gat skilið milli lífs og dauða — og stilla sig um að gleypa í sig graut- arskammtinn, þrátt fyrir mikla svengd. Árum saman var mjótt á mununum í Kasakstan, og loks, á síðasta ári fangavistarmnar, mynd- aðist æxli í maga lians og þrútn- aði svo hratt. að hann fann mun á sér frá morgni til kvöids. Það var nauðsynlegt að rannsaka þetta hið fyrsta. Læknar voru á staðnum — læknispróf kom ekki í veg fyrir pólitískar ofsóknir. Sjúkra skýlið var mjög ófullkomið og sjúk- lingar, sem þangað leituðu, voru óíáir. Loks samþykkci skurðlæknir einn að gera á honum uppskurð. Sýni af æxlinu var sent til rann- sóknar til næstu rannsóknarstofu, um 1300 km í burtu, en þar sem þrælkunarbúðirnar voru opinber- lega ekki til, var nain eða númer Solshenitsins ekki látið fylgja með prufunni. Þegar niðurstaða rannsóknarinn- ar lá loks fyrir, var siúkdómsgrein- ingin krabbamein, og Solshenitsin hefði þurft að fá geislameðferð til að draga úr vexti þess. Tæki til gelslunar voru ekki tii á staðnum, skurðlæknirinn farinn og enginn geiði sér það ómak að hafa upp á nafnlausum sjúklingi, sem sýnis- hornið hafði verið tekið úr, og Sol- shenitsin var sendur aftur í múr- verkshandlöngunina, ennþá sái'þjáð- ur. „FRJÁLS“ AÐ LOKUM. í febrú- ar 1953 var hann loks iátinn laus úr haidi, líkamlega niðurbrotinn. Þar að auki var hann sviptur mann- réttindum sem fyrrverandi póli- tískur fangi, og að eigin sögn dæmd- ur, eins og margir póiitsíkir fangar, til stöðugrar útlegðar án dóms. Hann var sendur í vörulest til eyði- legs staðar nálægt kínversku landa- mærunum — til afskekkts, frum- stæðs þorps í útjaðri Mujunkum, þar sem íbúarnir voru múhameðs- trúar. Fyrstu áhrifm af hálf-frels- inu eftir átta ár voru ótrúlega ljúf, (ein sögupersóna Solshenitsins lýsir því sem „þrumandi gieðitilfinningu í brjóstinu yfir því að sjá stjörn- urnar, en ekki leitarljósin í vinnu- búðunum"), Og fyrir sérstaka til- viljun gerðist það, morguninn eftir að Solshenitsin fann sitt fyrsta húsaskjól, eftir að hann var látinn úr haldi — á fleti slegnu saman úr gömlum kössum í eldhúshorninu hjá vingjarniegri fjölskyldu — að hann fór út til að hlusta á útvarpið í þorpshátalgranum — það voru ekki stríðsfréttir — ekki fréttir um handtöku nýrra,,sarnsærismanna“, ekki einu sinni hinar venjulegu fölsuðu skýrslutölur um framleiðsiu bjóðarinnar, heldur fréttir um frá- fail Stalíns. Lítið myndi breytast þegar í stað. en að minnsta kosti var óhætt að vona. Hann var aleinn Natalja hafði skilið við hann og gifst aftur fyrir tveimur árum. og jafnvel í saman- burði við aðra pólitíska útlaga var illa komið fyrir honum. En sjálfum sér líkur draslaðist hann með bóka- stafla með sér. Veikburða, fölur, í gömlum, vondum stígvélum og upp- lituðum herbuxum sótti hann um kennarastöðu í stærðfræði og eðlis- fræði í skóla staðarins. Skólastjór-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.