Skírnir - 01.01.1882, Blaðsíða 147
ASÍA.
149
konungur sveitir til að kanna stöðvar Ayubs, en þeim lenti
skjótt í bardaga við forvarðarliðið, og við það byrjaði orusta
með öllum her beggja. Hvor um sig mun hafa haft 16—18
þúsundir manna. Konungi veitti erfiðara framan af, en er
fram dró, vann riddaralið hans bug á riddarasveitum Ayubs, en
það urðu enn svik eða landráð, sem drógu til úrslitanna. Ayub
hafði látið liðhlaupasveitirnar frá Kabúl standa næst borginni
og vera þar til vara, en er bardaginn hafði staðið i tvær
stundir, og ósýnt var hver sigrast mundi, þá brugðu þeir menn
á sitt fyrra ráð, og ljetu skothríð dynja aptan á sveitir prins-
ins, og tók her hans þá að riðlast og leita á flótta. Kon-
ungur vann hjer mikinn sigur og náði 14 fallbissum, en af
Ayub höfðu fallið 250 manna. Hann komst enn undan og
vestur á Herat, en hjer var þá annar her konungs kominn á
undan og hafði unnið undir hann mestan hluta landsins.
Aýub sótti nú til hælisvistar í Persiu, og sumir trúa honum til
að freista enn giptu sinnar og gera þriðju atreiðina að ná ríki
á Afganalandi, hvenær sem honum þykir vænlega horfa. f>að
mæltist miðJungi vel fyrir, er konungur leyfði her sinum að
ræna borgina og þorpin umhverfis í tvo daga samfleytt. Honurn
mun hafa þetta þótt borgarmönnum maklegt fyrir drottinsvikin.
Japan og Sínverjaland.
Frá þessum stórveldum Austurálfunnar kunnum vjer engin
nýnæmistiðindi að segja. Japansmenn halda áfram að semja sig
eptir hátturn kristinna þjóða í öllu því, er þeir sjá að frarn-
förum sætir. 1875 tók keisarinn sjer öldungaráð, noldrurs-
konar höfðingjaþing til að taka þátt i lagasetningum og öðru
sem horfði í rikisþarfir, og setti um leið á stofn fylkja og
hjeraðaþing, um ailt riki sitt. Nú hefir hann boðað þau ný-
mæli tit stjórnarlaga, að kosið skuli til þjóðarþings, sem á að
taka til starfa 1890, en ætlast til, að fólkið búist undir þing-
málameðferð þangað til á fylkjaþingunum. I liaust sendi keis-
arinn menn ymsra erinda vegna til Evrópu, og heimsóttu jieir
marga höfðingja. I lok nóvembermánaðar komu þeir til Stokk-