Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1888, Page 42
42
Lítr helzt út fyrir, að hér hafi verið smiðja. Síðan fór eg upp á
Gunnarshaug, og reyndi að grafa þverskurð gegnum hann; reif
þar upp stóran stein; undir honum var klöpp; enga hleðslu eða
mannvirki var þar að sjá. f>etta hefir því aldrei verið Gunnars-
haugr, og Hka af þeirri ástœðu, að hann er svo langt upp og fyrir
austan bœinn, og þar að auki í hvarfi. þ>etta er því ekki annað
enn munnmæli; hóllinn er grjóthóll með þunnri grasrót að vestan,
enn melr að austan,
í túninu á Hlíðarenda standa stórir steinar, nokkurn veginn í
röð upp úr túninu; þar kynni að hafa verið neðri hliðveggr-
inn á skála Gunnars í eystra enda. f>ar gróf eg meðfram, og fann
þar ekki nein kennimerki; sá ekki til neins að grafa meira, með
því að húsagarðrinn tók við að vestan, og skálinn mundi þá hafa
verið þar vestr úr og undir. f>að á vel við sögunnar orð, að skál-
inn hafi staðið hér, og geilarnar eru rétt við enda hans og Sáms-
reitr á eystra barminum, litlu neðar. Hundinn, sem lá á húsum
uppi, teygðu þeir í skurðinn við skálaendann og gat því heyrzt til
hans í skálann. J>etta kemr vel heim. Skálinn hefir staðið í nokkur-
um halla, enn þar sem hér hafa verið stórbyggingar síðan, mun alt
vera umrótað, grjót og mold enda rifið upp.
Um kveldið fór eg út að Grjótá; leitaði að þráinshaugi, enn
hann er ekki til. Upp við túngarðinn á Grjótá heitir nú þráins-
gerði í túninu, umgirtr reitr, ferskeyttr. Á Arngerðarstöðum, bœ
þar hjá, var mér sögð skálatóft; hún er ekki annað enn hóll af
náttúrunni, með laut í. Heylœkr heitir bœr fyrir utan Hlíðarenda;
partr af túninu þar er kallaðr Akratunga, fyrir innan skurðinn, sem
er vestan til við bœinn og inn að öðrum skurði inst i túninu, enn
að ofan nær hún upp að túngarðinum; að neðan niðr að laut, er
liggr langsetis neðan til í túninu. Vera má, að Akratunga hafi
verið kölluð lengra upp, eða einkanlega niðr, í fornöld, því að óvíst
er, hvort Heylœkr hefir þá verið býli. f>etta örnefni kemr vel
heim við Njálu og reið Gunnars, sem fór út með hliðinni og þar
á ská upp og út á hálsana, beint út að Rangá nær Hofi, án þess
að fara nokkurn reglulegan veg. Beint í þessarri stefnu eru Geila
stofnar, sunnan eða vestan til í hálsinum. Nú eru þeir kallaðir
Rjúpnabotnar, upp frá eða i móti Velli, gil eða lautir.
|>essi örnefni sýna, hvé höfundr Njálu er bæði kunnugr og
nákvæmr.
Fimtud. 23. ág. fór eg frá Hlíðarendakoti um hádegi; kom
við á Hlíðarenda aftr, og fór svo sem leið liggr ofan að Bergþórs-
hvoli.
Bcrgþórslivoll er í Vestrlandeyjum austr við Affallið. Voð-
múlastaðir standa þar upp undan í stefnu á Eyjafjallajökul. Beint