Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1888, Side 45
45
sem úr tá eða úr einhverjum slíkum lið. Eg skal nú að sinni láta
ósagt, úr hverju þessar leifar eru.
Svo sem áðr er sagt, hefir skáli Njáls staðið, þar sem bœjar-
húsin standa nú, og ætla eg gröf þessi, sem eg lét grafa, sé nær
miðjum skálanum heldr við hinn nyrðra hliðvegg. Njálss. lýsir
svo vel brennunni og öllum þeim viðburðum, sem þar urðu, að
maðr getr séð, í sambandi við þau örnefni, sem enn haldast, á hvaða
átt vindr hefir verið þá nótt, sem brennan varð. Kári Sölmundar-
son hefir hlaupið úr eldinum út úr hinum nyrðra hliðvegg við hið
vestra gaflhlað; síðan hefir hann hlaupið vestr eftir túninu norðan-
megin túnhryggsins. f*egar Flosi reið heim að Bergþórshvoli,
hefir hann riðið ofan með Affallinu að vestan, sem enn er gert.
Síðan hefir hann riðið inn í túnið beint upp undan hvolnum, til að
láta hann skyggja á bœinn, og síðan upp í hvolinn.
Við vestrenda túnranans er mýrarsund um 6 faðma á breidd.
Tekr þá við Káragerðistún, sem er mjög lítið um sig. Bœrinn
Káragerði stendr á dálítilli hæð og ber þetta sama nafn. Sunnan
við túnjaðarinn, í landsuðr af bœnum, skamt frá honum, er ‘flóðkiU’
einn, sem kallað er þar, og heitir enn í dag Káradæla. þ>etta lítr út
sem nokkurs konar tjarnarrensli; menn tnuna eftirþví, að það muni
hafa verið nokkuð dýpra áðr.— Frá skálanum á Bergþórshvoli, eða
bœnum nú, og niðr að Káradœlu, eru nær 250 faðmar. þ>essi
Káradœla er sá ‘lœkr’, sem Kári slökti á sér eldinn í (sbr. sög-
una). Sagan nefnir þetta lœk, og getr það verið rétt til orða tek-
ið1. Beint í vestr frá Káradœlu sunnan til i bœjarhólnum fáeina
faðma frá smiðjukofa, sem þar stendr á hólnum, er lítil aflöng
lægð, nær 10 fet á lengd og 4 fet á breidd. þ>essi lægð heitir
enn í dag Káragróf. Bergþórshvols megin við Káragróf er dálítið
þúfnabarð, sem er hærra enn hinum megin við lægðina. Eg skal
geta þess, að gamlir menn, sem hafa verið í Káragerði, segja, að
gróf þessi hafi áðr verið miklu dýpri, þannig, að standandi maðr i
lienni hafi eigi sézt af smiðjuhólnum, sem þó er að eins fáir faðm-
ar, og er sagt, að grófin hafi grynzt við það, að í hana hafi verið
safnað afburði af túninu í seinni tíma. Frá Káradœlu f Káragróf
eru nákvæmlega mældir 40 faðmar. Hvorki Káradœla né Kára-
gróf sést frá bœnum á Bergþórshvoli.
Laugard. 25. ág. fór eg frá Bergþórshvoli, eftirþað er eghafði
gert dagbók mína. Kom að Fiflholti. Sá þar Lögréttubala, sem
kallaðir eru, fyrir vestan bœinn í túninu; þeir eiga ekkert skylt
1) Béttara virðist þó að orði komizt í hdr. því af Njálu, sem Sigurðr
Vigfússon hafði og áðr er getið. þar segir, að nKári hljóp . . . til tjarnar
einnar .... þar heitir enn Káratjörn*. V. Á.