Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1888, Page 57
57
þessu vera þannig farið, að búð (17.) hafi siðar verið hlaðin ofan i
miðju þessa mannvirkis, því að það er hæst um miðjuna. Dyr á þess-
arri búð munu þá hafa verið á syðra hliðvegg við austrendann
Helzt lítr út fyrir, að moldin hafi verið tekin úr austrgaflinum í
lítinn og ómerkilegan kofa, er bygðr hefir verið í vestrendanum,
enn nú er tekinn burtu. Hér kynni því að hafa verið þannig hag-
að, að upphaflega hafi verið hér tvær búðir, og sjálfsagt ein síðar
hlaðin ofan á. þ«að er auðséð, að þessu hefir síðar verið umrótað,
enda vita menn, að Brynjólfr gamli fór svo með mörg mannvirki
á þingstaðnum; það hafa kunnugir menn sagt mér. Hér gætu því
alls hafa verið 3 búðir (16., 17., 18.), sem ekki eru allar frá sama
tíma.
þ>á eru rannsakaðar allar þær búðir, sem eru fyrir austan trað-
irnar, sem liggja niðr frá bœnum á þingskálum.
Eg fór að Kaldbak um kveldið, sem er lítill bœr fyrir norðan
J>ingskála, og var þar um nóttina.
þriðjud. 4. sept. fór eg snemma um morgun'nn út-á þingstað-
inn. Uppi á brekkunni, þar sem bœrinn stendr, fyrir vestan kál-
garðinn, stendr búð (19.) langsetis á brekkunni; snýr í austr og
vestr; hún er á lengd 58 fet og 24 fet á breidd. Við syðra hlið-
vegg búðarinnar á brekkubrúninni er þrep eða stallr, sem hlaðinn
hefir verið til að ganga eftir. Dyr munu hafa verið á syðra hlið-
vegg, sem annaðhvort hafa verið dyr inn úr afhúsi eða útbygg-
ingu, sem þá ekki sést, eða það er af mannavöldum síðar, því eðli-
legast er, að hafa aðaldyrnar undan brekkunni.
Eg hugði vandlega að öllu kringum kálgarðinn, og fann við
suðrhlið hans auðsjáanlega búðarvegg (20.), er stóð fram undan öll-
um garðinum. Fyrir vestrenda þessarrar búðar sést greinilega út
undan vestrhorninu á garðinum, enn hinn eystri endi búðarinnar er
undir öðrum kálgarðsvegg, er bygðr hefir verið fyrir austan þenn-
an og nær lengra niðr í brekkuna. J>að sem sést af hliðveggn-
um er 45 fet á lengd. Meðfram öllum veggnum er hár og breiðr
stallr á brekkunni, og hefir hann verið hlaðinn fram undan búð-
inni og eins á þeirri fyrrtöldu. Eftir því, sem munnmælin segja,
eru þetta leifar af búð Marðar gígju, og austrendi hennar hefir
gengið inn á hlaðið, áðr enn kálgarðrinn var bygðr. f>etta hefir
verið allstór búð, og hefir staðið á fögrum stað mjög hátt.
Beint niðr undan þessari búð, fyrir neðan brekkuna, nærri á
jafnsléttu, stendr búð (21.) 34 fet á lengd og 24 fet á breidd; snýr
í austr og vestr: dyr á syðra hliðvegg miðjum; þessi búð er víst
1 ll2 mannhæð frá grundvelli og með ákaflega þykkum veggjum,
og er auðsjáanlegt, að hún er hlaðin síðan ofan í aðra búð.
Fast við vestrgafl þessarar búðar er stór búð (22.), 65 fet á
8