Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1888, Page 100
100
myndinni til hœgri handar stendr: ,,Ragneida Jonae, vidua supcr-
stes, Anno aetatis 38, conjugii vero 10u. Yfir konumyndinni, sem
er nær byskupi til vinstri handar, stendr: „Groa Thorleifi, obiit,
anno 1660, aetatis vero 27, conjugii 2U Yfir þriðju konunni stendr:
„Ingibiörga Benedicti, denata anno 1673, aetatis vero 37, conjugii
9.u Neðan undir myndunum stendr: Praesulis Holensis perspicis
ora. Gislai ingenii dotes Islandia laudat. Ad latera uxorum nu-
merum, quarum una superstes hanc sistit tabulam; Clarebunt nomina
coelis111. Alt þetta letr, sem á myndinni er, er gylt. Auk þess
skal eg taka það fram, að allar þessar myndir sýnast vel gerðar,
og þar að auki eru þær að því leyti mjög merkilegar, að þær sýna
svo vel og greinilega búning þeirrar aldar. Enn skal eg geta þess,
að stungin hafa verið göt á augun á þrem myndunum, og er slíkt
hryggilegt.
N r. 14. Næst altarinu að norðanverðu er mynd af Giuðbrandi
byskupi f orlákssyni. Hún er i al. á hæð og s/4 al. á breidd.
Hann er þar í svartri kápu með breiðum uppbrettum kraga. Hann
heldr á bók. Fyrir ofan myndina standa með gyltu letri sömu orð
og á hinni fyrr umgetnu mynd (nr. 11.), nema hvað síðast stendr:
„Anno 1620, ætatis vero 78“, og erþessi þvi rúmu ári yngri. Hún
sýnist lítið vera skemd, og að öðru leyti er hún alveg eins og mynd
sú af Guðbrandi byskupi, sem er á safninu.
Nr. 15. Nyrzt í kórnum er önnur ákaflega stór mynd, 2 áln.
7 þuml. á hæð, 1 al. 18 þuml. á breidd. Á henni er Kristr á
krossinum. Við krossinn krýpr Gcísli byskup f orláksson og
(fyrsta) kona hans, Grróa f orleifsdóttir (f 1660)1 2. Hann hefir
mjög sitt hökuskegg og kampa á efri vör, með hvítum pípukraga
og er í svartri kápu. Konan hefir alveg sama búnað, og á stóru
myndinni nr. 13., nema sá er munrinn, að hempupörin ná ekki
nema ofan að mitti, og ekki sést pilsið eða samfellan. Báðar
myndirnar leggja saman hendr. Utan um myndir þessar eru port,
með súlum til hliðanna, sem mynda boga að ofan. þ>ar ofan á eru
2 vængjaðir englar. Yfir krossinum eru nokkrir hebreskir stafir.
Neðan undir á fœtinum standa með latínskum gylturn stöfum vísu-
orð þessi:
„Praesulis externum Gislai perspice vidtum.
Aurea sed clarae mentis imago deest.
1) Hér segir að ekkja Gísla byskups, Bagnheiðr Jónsdóttir, lét gera
myndina.
2) þar eð myndin er frá 1661, enn hann fékk eigi Ingibjargar fyrr
enn 1664, verðr þetta að vera mynd frá Gróu, enda bera vísuorðin neð-
an undir það með sér.