Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1888, Qupperneq 102
102
68ui. Myndin er með gðtum, flögnuð og eyðilögð, öll með hvít-
um og gráum skellum. |>ó mætti enn taka af henni eftirmynd af
góðum málara, enda væri það skaði, að hún eyðilegðist, því að hún
hefir verið einkar vel máluð: augun fjörleg o.s. frv.
Nr. 21. Inst á suðrvegg framkirkjunnar er mynd, sem sagt
er að sé af Jóni lækni Steinssyni byskups, er nefndi sig Berg-
mann þj* 1719). Myndin er á hæð 1 al. 8 þuml., enn á breidd 1 al.
2 þuml. Hann er á sérlega skrautlegum búningi, hefir parruk á
höfði og er í spangabrynju, með rauðan feld um öxl, allan settan
utan með gyltum kórónum. par sem feldrinn brýzt upp, sýnist
hann vera fóðraðr með hvítum dýraskinnum með svörtum dílum.
Feldrinn er spentr saman á vinstri öxlinni að gömlum sið, og er
spenna þessi eða feldardálkr með gimsteini í miðju og sett minni
steinum umhverfis. Spenna þessi er mjög stór. Um hálsinn er
brún blæja með Ijósleitum rósum, og hanga niðr endarnir. I>ar í
er nál, er virðist vera stór steinn. Mynd þessi er vel máluð, og
maðrinn er fremr unglegr, því hann er skegglaus. Að öðru leyti
er myndin föl og nokkuð skemd ; enn mest kann það að vera af
því, að hún er óhrein og hrukkótt, því að undir henni er að eins
lítilfjörleg trégrind, sem myndin er bundin við. Mynd þessi er
brjóstmynd í fullri stœrð.— Um búning á mynd þessari er það að
segja, að þetta er stórhöfðingjabúnaðr eða jafnvel gamall konunga-
búnaðr, og hafi Jón læknir Steinsson verið þannig búinn hér á landi,
hefir hann verið skrautmenni mikið, enda var sóunarsemi hans við
brugðið, því að erlendis sóaði hann farareyri sínum, er líklega hefir
til verið ætlazt að hrykki, á 3 eða 4 árum, og komst að auki
í 1600 dala skuld, sem eftir peningaverði þá var harðla mikið
fé. Hann var að eins rúmlega tvítugr, er hann lézt (J.E. Árb.
ix. 43).
Nr. 22. Næsta myndámiðri suðrhlið er af einhverjum, er eigi
hefir geymzt nafn á. Hún er sporöskjulöguð, með gyltum ramma,
gömlum, með mjög upphækkuðu verki. Hún er 1 al. 8'l2 þuml.
á hæð og 1 al. 2 þuml. á breidd. Er það brjóstmynd í fullri stœrð.
pessi maðr hefir alveg sama búning og hinn (nr. 21.), að því frá
skildu, að hinn skrautlega feld vantar, þ. e. a. s., að hann sé eins
og á hinni, enn þó sýnist móta fyrir rauðum fellingum neðan til
á myndinni, enn þar eð myndin er orðin föl og töluvert sprungin,
sést þetta ekki greinilega. Mynd þessi er mjög ungleg og skegg-
laus og fremr vel gerð.
Nr. 23. Fremst á suðrvegg kirkjunnar er enn mynd af em-
hverjum, sem óvíst er af hverjum er. Hún er 1 al. 4 þuml. á
1) Myndin er þá frá 1728, því Steinn biskup var fœddr 1660,