Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1951, Síða 19
23
og tengd gólfi nr. 26. Meðal þess sem fannst var íleppur, prjónaðar
pjötlur, margar ofnar pjötlur, brot af leirkeri, tréskálarbrot, askstafur,
hestskónagli og trétittur.
Gólf nr. 25. Undir nr. 21 var gólf á 121 sm dýpi og líkt því að
stærð, lögun og útliti, en náði skemmra austur. (Stærð 2,4 X 3,5
m). Nokkrir steinar undan stoðum fundust, t. d. í báðum hornum í
austurenda, í miðju gólfi austarlega og við miðja veggi að austan
og sunnan, en ekki er auðið nú að átta sig á fleiri steinum. Svigi
fannst í gólfinu, 37 sm að þvermáli. Þar hefur staðið ker. Hér virðist
hafa verið eldhús. í gólfskáninni fannst slitur af hvítum sjóvettlingi,
eirplötubrot og brot af leirskál með blárri rönd.
Gólf nr. 26 kom í ljós undir nr. 23 á 126—130 sm dýpi, 1 m frá
vesturhlið og 3—4 m frá suðurhlið og sneri frá austri til vesturs,
stærð 2,2 X 7,2 m(?). Líklega hefur verið gangur yfir í nr. 24. (Dag-
bók M. Þ. 21. 7. ’27). Gólfskánin var nokkuð öskublandin með
miklu beinarusli og mjög hörð. Hún náði lengra vestur en næstu
gólfskánir yfir og undir (nr. 23 og nr. 29). Úr vesturenda hefur
verið 70 sm breiður gangur til nr. 27. Gólfskánin í honum var ekki
þykk.
Gólf nr. 21. I vestasta horni rannsóknarsvæðisins kom í ljós endi