Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1951, Page 22
26
7. ’27). I sjálfu kofagólfinu fannst eirþynna með nöglum og eir-
pípubrot.
Gólf nr. 33. Undir nr. 29 var þunnt moldarlag, en t>á tók þessi
gólfskán við á ca. 150 sm dýpi. Hún sneri eins og hin efri, en var
norðar, 3 m frá suðurhlið og 2,5 m frá vesturhlið. Stærðin var
2,2 X 6,4 m.Gólfskánin ,,var hörð og að miklu leyti úr grárri tað-
ösku. 1 austurhorni hennar, þar undir er var steinaröð í þeirri efri,1
kom fram far eftir annan skyrsá. Hafði hann staðið þar í húshorninu
og [var] myndaður harður og glöggur öskuhringur umhverfis. Sár-
inn hafði verið 93 sm að þvermáli og farið var 25 sm djúpt. . . .
Leifar af trégjörð voru í því og járnnagli úr henni“ (M. Þ. 5. 7. ’27).
,,Er komið var niður um 20 sm [á 160 sm? ] í vesturendanum, vestan
við sáinn þar, [sem var í nr. 29] varð fyrir annað sáfar með ösku-
hring um, 1 m að þverm. Það var um 10 sm djúpt og aska, blandin
og dökk undir. Austan við fyrsta og dýpsta sáinn [sjá nr. 29] var
allmikið grjót, svo sem lagt nokkurn veginn í jafna hæð, líklega í
gólfið; hér var allmikil aska og kunna að hafa verið hér hlóðir.
1) Ekki er þessarar steinaraðar getið við nr. 29, hins vegar var þar
steinaröð í vesturenda skv. dagb. 15. 7. ’27.