Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1951, Side 35
39
verið notað. Það sneri eins og nýja húsið. Yfir því og nokkru austar
er hús, sem snýr frá norðvestri til suðausturs (nr. 49). Það hefur
verið endurbyggt, stytt og breikkað (nr. 47). Yfir þeim voru tvö
gólf, nr. 44 og 46, sem bæði sneru eins og nýja húsið og yfir nr. 44
var nr. 38, sem sneri eins og var á 170 sm dýpi. I öllum þessum
húsum hafa verið kyntir eldar. Nr. 49, 47 og 46 virðast hafa verið
vefjarstofur, en nr. 38 nefnir M. Þ. smiðju, ef til vill hefur nr. 44
verið það líka. Þetta er elzta húsahverfi, sem M. Þ. fann á Bergþórs-
hvoli; það virðist ná vestur fyrir takmörk rannsóknarsvæðisins.
Sunnan þessa hverfis á -4- 215 sm var gólf nr. 41. Er óvíst, hvers
konar hús þar hefur verið. Yfir því var nr. 37, sem einnig er lítið
vitað um, og yfir því var nr. 32, sem var smiðjugólf á 140 sm dýpi.
Ekki virðist byggðin hafa verið eins samfelld hér eins og í norður-
horninu og lítið um beinar endurbyggingar húsa, að því er helzt
verður ráðið af gólfskánunum.
Nokkuð vestur frá norðurhorni nýja hússins voru tvær gólfskánir,
nr. 35 og 36, á 145—175 sm dýpi, og sneru rétt við höfuðáttum.
Hin eystri var eldhús, en hin að líkindum skemma. Yfir þeim voru
nr. 20 og 22, einnig eldhús og skemma, en voru mjög mislægar
að stefnu við neðri skánirnar. Yfir þeim voru nr. 13 og 14, sem
bæði sneru rétt við höfuðáttum, en óvíst er til hvers þau hafa verið
notuð. Yíir þeim voru nr. 6 og 9, sem sneru eins og nýja húsið.
Einnig er óvíst um notkun þessara húsa, og yfir þeim voru enn nr.
3 og 5, og má því segja, að þetta húsahverfi nái upp á yfirborð.
Gólf nr. 39 liggur frá austri til vesturs frá vesturenda nýja hússins
þvert yfir rannsóknarsvæðið á 170—190 sm dýpi, en undir því eru
nr. 45 og 40, sem lítið er vitað um; nr. 40 hefur þó verið sams konar
hús og t. d. nr. 33, 29 o. fl. Það er eldhús, þar sem einnig var
geymdur matur. Yfir nr. 39 eru þrjú hús í röð, nr. 33 og 34, hvort
af annars enda og göng á milli og austast nr. 31. Nr. 33 er eldhús
og matargeymsla, nr. 34 er líklega baðstofa og nr. 31 líklega smiðja,
að minnsta kosti var þar rauðablástursþró. Á milli þessara þriggja
húsa og nr. 39 voru moldir (þó var þar ,,gólfskánarkennt“, segir
M. Þ.). Lítur út fyrir, að ekki hafi verið byggt strax ofan á nr. 39,
án þess að það verði þó fullyrt. Þessi þriggja húsa samstæða endur-
tekur sig nú upp eftir, þannig að vestast eru eldhús (nr. 29, 26 og
23), þá göng til baðstofu, sem er í miðju (nr. 30 og 24) og austast
eldhús (nr. 28, 25 og 21). Allt eru þetta langhús, en austasta húsið
hefur þó sérstöðu. Það snýr öðruvísi og virðist auk þess hljóta að
hafa haft samband við hús (baðstofu?), sem staðið hafi austar eða