Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1951, Side 120
122
nú ekki. — Með einhverju móti hefir Brynjólfur biskup eignazt síðar
Tröllaskóg. I Arnarbæli 14. júní 1653 gefur biskup prestinum þar,
Jóni Daðasjmi, „fullkomlegt umboð og eignarráð j4ir Tröllaskógi á
Rangárvöllum í Keldnasókn, eyðijörð 10 hundruð að dýrleika".2 Og
jþeir ,,forlíkast“ um verðið án þess að nefna það. — Eigi er kunnugt,
frá hvaða heimild biskup hefir haft þetta 10 hundraða mat á Trölla-
skógi eða hversu gamalt það hefir verið. En óhugsandi er slíkt verð-
gildi útjaðra einna í fári fyrir aleyðing, svo seint á tíma.
En áfram hefir haldið eyðing þessa lands alla 17. öldina, svo að
ekki er björguleg lýsingin 1711: „Stóri Skógur (Tröllaskógur) er
sem rúmlega hálf bæjarleið frá Litla Skógi í Árbæjarlandi, sem nú
er haldið. Hefir án efa byggður verið til forna, og kirkja þar staðið,
sem bevísa girðingar og mannabein, er uppblása í stórviðrum. Nú
er bæjarstæðið og landið í kring sumpart kafið sandi, sumpart komið
í blásið hraun og vatnsból ekkert og þar fyrir aldeilis óbyggilegt“.
Líklegt er, að Litli Skógur hafi fremur verið byggður úr óskiptu
landi Tröllaskógs en Sandgils. Er því athugandi, að við nefndar sölur
er jörð sú ekki nefnd. Ekki einu sinni Brynjólfur biskup, með allri
sinni hárnákvæmu og miklu orðgnótt, nefnir hana. Lítur því helzt út
fyrir, að býli þetta hafi verið alveg gleymt út á við, ellegar talið sjálf-
sagður fylgifiskur Tröllaskógs.
Gári. Sandgári sá og skriðvikur, sem hefir eyðilagt Tröllaskóg, hlýtur
að hafa tekið til starfa mjög snemma. (Sbr. bls. 94). Líklega fyrr en í
Heklugosinu fyrsta, sem annálar nefna og „sandfallsveturinn mikla“ 1104.
Upptökin — í austanveðrum — hélt Skúli á Keldum, að hefðu verið í
Grasleysufjöllum og fram úr Hungurskarði, milli Vatnafjalla og Hafra-
fells. Meginhluti hans rifið sig áfram um Skógsöldu, en skilið þó eftir blett
þar norðar, á lægri stað, er hét Skotavöllur. Þar var ágæt hrossabeit fram
á 19. öld. — Kann svo að vera, að Sandgilja hafi hlíft þar skekkli nokkrum
og tekið við versta skriðvikri í landnyrðingsveðrum, meðan hún var og
hét. Gári sá hefir fyrst tekið af Tröllaskóg, tafizt fyrir í Skógshraunum
(sem nú heita svo) og verið nokkuð lengi að ráða niðurlögum Sandgiljanna
eftir röð I, II og III. Lága túnið í skjóli brúna kann að hafa orpizt sandi
frá gárunum og því lagzt í eyði löngu á undan Sandgili III, þótt þá væri
eftir mikið af högum þar. Fleygar úr þeim mikla gára hafa komizt fljótt
að Eystri-Rangá og eyðilagt þar býli tvö, er síðar getur, hefir þó senni-
2) Þessi 10 hundraða dýrleiki sýnist krítaður liðugt, því að 12 árum fyrr
segir sami biskup, að Tröllaskógur sé tíundaður fyrir 5 hundruð. (Vísit.
á Keldum).