Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1890, Blaðsíða 46
158
bil sexfaldan, góðan lauk; 17 hinirstærstu
ógu 1 pund. í nánd við heita hveri hafa
laukarnir orðið stærri en hjá mjer, og
ávöxturinn hefur og orðið meiri. f>ó
er ræktun lauks þessa naumast áreiðan-
leg, þá er eigi er gott í ári eða ærir
illa. Aptur á móti getur pípulaukur (alli-
um fistulosum) þolað hinn mesta kulda og
getur staðið úti allan veturinn. Ræktun
pípulauksins er eigi eins ábatasöm og
ræktun jca/öA-lauksins, en hún bregzt
aldrei, og ætti það skilið, að vera stunduð
alstaðar á íslandi.
Allium Cepa (rauðlauk) hef jeg eigi haft færi á að
reyna hin góðu sumrin.
Allium schoenoprasum (Purlög). Af lauk þessum
má fá fullþroskað fræ á íslandi. Allium
porrum (Purrelög) verður hjer að eins
ræktaður með mikilli fyrirhöfn; honum
verður að sá í vermireiti og tvísetja síðan,
í síðara sinn á bersvæði svo seint, að eng-
in hætta sje við frosti á eptir, og verður
þó árangurinn heldur ljelegur.
Anthriscus Cerefolium. Almennu kjörvelli má sá opt-
sinnis á ári, og verður fræ þess fullþroska
á góðum sumrum. Hið spænska kjörvel,
sem svo er nefnt (Myrrhis odorata), vex
sömuleiðis ágætlega hjer á landi, lifir vet-
urinn yfir á bersvæði án nokkurs skýlis;
á því verður fræið fullþroska, sáir sjer
sjálft og kemur upp næsta sumar. Jurt
þessi lifir mörg ár. Blöð hennar verða
notuð langt um fyr á vorum en nokkuð
annað kálmeti hjer á landi, og verðskuld-