Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1890, Blaðsíða 140
ar. Af lestrarbókinni veit eg sjálfr eckert eins og af
ísl. málfræðibókinni, nema að hvörtveggja er búin af
minni hönd. [Síðan þetta var skrifað hefi ég feingið bréf
frá umboðsmanni mínum í Pétursborg, hvarí hann kemst
svo að orðum: Islándska sprákláran (sú svenska), láse-
boken och Eddan (Snorraedda) áro utkomne, och de tvá
första áfven recencerade (í svensku bókaskriftartíðind-
unum að Uppsölum)].
Agæta vænt þótti mér að frétta um látínskn málslist-
ina þína, ég held hana eins og allar kenslubækur fyrir
mjög mikilvæga til að halda við íslenzkunni og þjóðar-
innar heiðri. |>að vonar mig að þú hafir sem fæst látínsk
orðskrípin; ég var búinn í Hólmum að týna saman mál-
fræðisorð á ísl. um leið og ég skrifaði formálann við
Engilsaxnesku málslistarbókina, enn eg hefi sendt það
með öðru rusli til Hafnar fyrir laungu. Fylgðu ecki of-
nærri dönskunni, sem er mjög annarrar náttúru, egvarð
að halda mér við gömlu þecktu orðin, enn þess er eing-
in nauðsyn í lslenzkunni, þar sem eingin þvílík orð eru
algeing að kalla má. Hér svo mörg af mínum, sem mér
koma nú í hugann. Málslist (Gramm.), Hneigíngarfræði
(Etymologia, Formlære), orðsmíðafræði (orddannelseslære
sv. ordbildningslára) sem þú munt víst ecki sleppa, teing-
ingarfræði (syntax), hendingafræði (prosodía), málsbreyt-
ingafræði (dialectologia, sem þó ecki er nauðsynlig í Lát.),
orðaflokkr(pars orat.),nó'/w(eðr heiti)nomma.,viðrnöfn adject.
fyrirnöfn pronom., sagnir verba, viðrsagnir adv., teingdar-
orð conjunetion, sambandsorð præpos., úthrópunarorð
interj.,hneigíng flexio,nafnahneigíngdeclinatio,sagnahneig-
íng conjugatio, hneigíngarform paradigma, nafnbreytingar
casus (elligar samhandsbreytingar elligar eintómis breyting-
ar), casus: nefnandi nomin., úthrópandi vocat., áverkandi
accus., tillítandi dat., eignandi genit. Væri ecki görligt að
segja nefnaudinn, nefnandann, nefnandanum, nefnandans
tÉ.c.? |>ví það yrði viðfeldnara heldr enn nefnandi sam-
banzbreytíng &c. að mér sýnizt. — fall, getnaðarfall &.c.
þykja mér öldungis óbrúkanlig. Fyrirnöfnin eru persónulig,