Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1890, Blaðsíða 61
173
Nemophilla.
Matiola annua. £>essi blómjurt þrífst miklu betur,
ef hún er flutt og gróðursett á öðr-
um stað, en til hennar var sáð.
Godetia,
Reseda alba.
— odorata.
Adonis æstivalis,
Negella damaseena.
Lupinus (ýmsar tegundir eins árs).
Linum grandifl. rbr.
Ef einhver vill sá blómfræi í kaldan reit, því
sem sáð er í Danmörku og Noregi á bersvæði, og
hafa glugga yfir, unz plantan hefur náð nokkrum
þroska, þá má fá blóm á flestar tegundir, er garð-
yrkjumenn rækta í þessum löndum. Sömuleiðis má
fá mesta fjölda af þeim eins árs blómjurtum, sem
garðyrkjumenn ráða til að sá til í vermireiti, eða
krukkur, áður en þær eru gróðursettar, til að
blómgast hjer á landi, ef þær eru gróðursettar í
kalda reiti með gluggum yfir, í staðinn fyrir á ber-
svæði, eins og í Danmörku og Noregi.
Plöntur, sem látnar eru vaxa i krukkum.
Um þær plöntur, sem sáð er til í krukkum, get
jeg eigi sagt mikið, þar sem jeg hef eigi getað
gjört mjer gróðrarskála eða eitthvað því um líkt,
til að rækta þær. Á íslandi mætti annars koma
upp ágætum gróðrarskálum, ef fje væri til þess.
með því að veita heitu vatni frá hverunum eptir
ræsum niðri f jörðinni, og reisa hús yfir; þá væri
bæði hiti fenginn og raki. Ef hús þetta væri nógu
langt, mætti hafa í öðrum endanum, þeim sem sneri
að hvernum, vermiklefa, og svo minnkandi hita allt