Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1890, Blaðsíða 125
237
Kona hans var Hildur Jónsdóttir Jonssonar
prests á Grenjaðarstöðum, hún giptist aptur Jakobi
Johnsen, verzlunarstjóra á Húsavík og lifir enn í
Kaupmannahöfn.
47. Schneider (August Ferdinand), fæddur i Kaup-
mannahöfn 1815; tók próf í læknisfræði við háskól-
ann í Kaupmannahöfn 1840 með 2. lakari einkunn:
varð svo læknir á hvalaveiðaskipi { Suðurhöfum
1841—43; gekk aptur undir próf 1845 og fjekk þá 2.
betri einkunn; skipaður læknir í Vestmannaeyjum
28. júlí 1845; honum var veitt lausn í náð 2. sept-
í Helgafellssveit, og var það þá að Oddur bað hann fara til
Hrappseyjar og skoða mein það, er Ragnheiður Bogadóttir,
kona Bjarna Gottskálkssonar hafði á kinn, fyrir því að Oddur
hafði opt freistað að lækna hana en ei áorkazt; hjet Báll því,
ef Oddur færi með honum og lofaði hann því. Frá Hrauni
reið Páll i Stykkishólm og gisti hjá Arna kaupmanni Thorlaeius
um nóttina; var þar og þorvaldur Sivertsen úr Hrappsey gest-
ur kaupmanns og sváfu þeir Páll saman, en ei fjekk Páll sof-
ið um nóttina fyrir þorsta ákaflegum, vildi Páll þá fá sjer vatn,
en þorvaldur kvaðst kunnugri og bauðst að sækja honum
vatnið og hefur svo þorvaldur frá sagt, að hann bar honum
4 eða 5 skálar fullar, drakk Páll þær af og kvað sig furða,
hversu hann mætti svo mikill þorsti sækja. Oddur læknir
kom nú um morguninn og ætlaði til Hrappseyjar með Páli.
Páll rjeð sjer og Oddi far með ívari Helgasyni. ívar hlóð
mjög skipið en það var lítið. Árni Thorlacius bað ljetta á því
og þykktist við, er það var ei gjört. Er Páll var kominn út í
skipið og Oddur stje öðrum fæti á það, vjek hann sjer upp úr
því skjótlega og mælti: „á þessu skipi fer eg ekki, það fer til
andskotans, komdu upp úr Páll“, aðrir segja að Oddur hafi
sagt: „eklti fer eg á þessu skipi, get eg drepið mig, þó eg gjöri
það ekki innan 2 eða 3 klukkustunda“. Páll fór eigi að síð-
ur' og fórst skipið i straumröst nokkurri, er liggur með Hvann-
ey, vestustu ey Hrappseyja. J>egar maður nokkur kom að
Hrauni eptir skipskaðann og kona Odds spurði hann frjetta,
greip Oddur fyrir og mælti: „eg veit að hann ívar hefur drep-
ið læknirinn okkar, hann var lengi bölvaður pamfíll“.