Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1890, Blaðsíða 144
256
því höldar kalla huglaust grey
þann hikar í fyrsta spori.
enn frá Persalandi er minn ásetníngr að skjótast sem
snöggvast til Kalkúttuborgar í Bengalen, enn þaðan
austr í Burruan eðr Ava, en þaðan norðr í Höfn eðr
Beykjavík. Lifðu nú sæll og blessaðr þángað til við sjá-
ustum aptr og heilsaðu öllutn vinum og vildarmönnum á
Islandi frá þínum allt til dauðans
einlæga og skuldbundna vini
B. Bask.
Háeðla og Hálærðum
Sra. Artta Helgasyni
Dómkyrkjupresti í Beykjavík
á Breiðholti.
Athugasemd. Brjef þetta, frumritið, var f eigu bróðurson-
ar síra Árna flelgasonar, yfirkennara H. E. Helgesen, og hef-
ir ekkja hans góðfúslega lánað það til prentunar. í sama stað
er og niður komið annað brjef frá Rask til síra Árna, dags.
i Ispahan 24. maí 1820, og er það prentað mestallt f Klaustur-
póstinum IV. árg. bls. 26—28.
Ekki vita menn til, að neitt hafi orðið af því að síra Arni
semdi „latínska málslist“ þá, er Rask minnist á i brjefinu. J>að
hefiraldrei orðið nema ráðagerðin tóm. Lærisveinar hans vita
eigi til þess, að hann notaði annan leiðarvisi i latínskri mál-
myndalýsing en bækur þeirra Bröders og (siðar) Badens. Að
því er snertir tillögur Rasks í brjefinu um ‘þyðingar á málfræð-
islegum orðum, er fróðlegt að bera þar saman við annað brjef
hans um sama efni, en eldra, til Grims Jónssonar, dags. í
Stokkhólmi 12. febr. 1818, sjá Timar. IX. 92. Nægir að öðru
leyti að vísa í ritgjörð dr. B. M. Ólsens i þeim árgangi Tíma-
ritsins (IX). Skal þess að eins getið, að þetta brjef er prent-
að stafrjett eptir frumritinu, orð, sem höf. hefir ritað milli lína,
sett milli sviga, og viðbætir á spássíunni hafður milli horn-
klofa. tJtg.