Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1890, Blaðsíða 62
174
að hinum endanum, við afrennslis-augað, þar mætti
hafa varmalaust hús. Auk krukkujurta þeirra, sem
jeg hef nefnt i skýrslu minni 1886, þrífast margar
sígrænar plöntur ágætlega hjer á landi; þannig hin
almenna Myrte, sem blómgast mjög vel, Eucalyptus,
llex og Evonymus japonicus. Af öðrum þess konar
plöntum, sem þrífast vel, skal jeg að eins nefna
Imantophyllum, Agapanthus og Calla palustris.
Um kornyrkju á Islandi.
Um almenna kornyrkju, og svo að nokkuð kveði
að, er varla nokkur von hjer á íslandi, með þvf að
uppskeran verður óvís, og gæði þess, sem aflast
kann, hversu vel sem gengur, lítilfjörleg. J>eir, sem
þvf búa f grennd við verzlunarstaðina, munu geta
keypt það við minna verði hjá kaupmönnum, þrátt
fyrir flutningskaup og gróða kaupmanna á því, held-
ur en að yrkja það sjálfir.
Aptur á móti gæti ef til vill verið um það að
ræða, að þeir landsbúar, sem búa langt frá verzlun-
arstöðunum, svo að þeir verða að flytja kornið
margar dagleiðir á hestum (hverja tunnu á hesti),
áður en þeir komast heim til sfn með það, ef til
vill skemmt af regni á leiðinni o. s. frv., gætu yrkt
hjer og hvar lftið eitt af korni, svo að þeir hefðu
hag af, því að slfka menn getur kornið heimflutt
hæglega kostað 10 kr. meira hver tunna, en það
kostar erlendis.
f>á er jeg f fyrra sumar ferðaðist um landið
fór jeg um það hjerað (Eyjafjallasveitirnar), sem liggur
vel mót suðri; því hlífa há fjöll gegn norðanvindum;
þar hefur og reynslan sýnt, að garðyrkja heppnast
vel, og þar má fá betra gulrófnafræ en víðast ann-
arstaðar á íslandi. f>eir, sem þar búa, verða að