Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1890, Blaðsíða 80
192
£>ar að auki hafði hjeraðslæknirinn í Vestm.anna-
eyjum 30 rdl. í stað embaettisjarðar, og læknarnir í
Vesturamtinu 25 rdl. hvor; hinir læknarnir bújörð
allir nema læknirinn í Húnavatnssýslu og Skaga-
fjarðarsýslu.
Með launalögum 15. okt. 1875 er nú 5 hjeraðs-
læknum (í Reykjavik, Stykkishólmi, ísafirði, Akur-
eyri og Eskifirði) launað með 1900 krónum árlega,
hinum 15 með 1500 kr. árlega.
3. Aukalæknar.
Laun aukalækna eru ákveðin 1000 krónur árlega.
4. Lœknaskólinn.
Forstöðumaður (jafnframt landlæknir) laun: 4000 kr.
Hinn fasti kennari................. — 2400 —
Aðstoðarkennarinn (hjeraðsl. i Rvík) . — 800 —
II.
Læknakennsla.
Eins og getið er um að framan, var landlækni
Bjarna Pálssyni gjört að skyldu að kenna hjer
læknisfræði. í erindisbrjefi Bjarna var tekið fram,
að þeir sem gæfu sig í kennslu hjá honum, þyrftu
eigi að vera útskrifaðir úr skóla, heldur að eins að
þeir ættu að vera af góðu fólki komnir og námfús-
ir og greindir, og að kunnátta þeirra væri á borð
við það, sem stúdentar kynnu, og að þeir væri svo
efnum búnir að þeir gætu keypt sjer sjálfir bækur
og læknisverkfæri og annað, sem þurfa þætti, og
að þeir gætu sjálfir borgað kennslu og meðgjöf fyr-
ir mat og klæðnað. f>að voru mikil vandkvæði á
því fyrir Bjarna að fá menn til kennslu, og það
litur og svo út, sem almenningur hafi þegar í