Samvinnan - 01.09.1927, Side 106
280
SAMVINNAN
sem er sjaldan talinn bamaleikur. Hafa stundum við
þetta lagst 5 kr. á hverja sementstunnu, sem í land hef-
ir komist, og á annað eftir því. Þykir það gott, ef sjór
hefir ekki gengið yfir allan farminn í lendingunni. Mikil
endurbót er þó að vöruuppsátri því, sem komið er við
Skaftárós. Er þar kaupfélagsverslunarútibú frá Vík, sem
dregur mjög úr hinum miklu verslunarörðugleikum, sem
vatnsföll og vegalengdir baka mönnum löngum þar aust-
ur í sveitunum.
Eitt er það, sem mætti segja, að sérstaklega einkendi
Eyfellinga og Skaffellinga, en það er, hvað þar eni marg-
ir hagleiks menn og snillingar. Verið getur, að hin tíðu
skipströnd þar á söndunum, eigi nokkum þátt í þessu.
Er það mikil vakning fyrir unglinga í þessu efni, að altaf
er fyrirliggjandi allskonar málmur og tré úr þessum
strönduðu skipum. Fylgja þá löngum mörg vönduð verk-
færi hverju skipi, sem menn geta oft eignast fyrir lítið.
Oft má sjá þess merki á heimilunum, að skip hafa strand-
að þar í grendinni. Eru þar stundum öll hurða- og skápa-
handföng úr glóandi kopar eða eir og einnig mikið af
eldhúsáhöldum. Hirslur úr mahoni eða öðrum dýrum viði,
sem ýmist hafa rekið, eða verið smíðaðar eru þar al-
gengar. En úti í kring um bæina liggur allskonar járna-
msl, bæði hjól, pípur og öxlar úr vélum skipanna. Úr
þessu efni em svo sett saman allskonar verkfæri, bæði
smá og stór. Við þetta eykst mönnum þroski, bæði að
verkhygni og áræði. Og „hjálpaðu þér sjálfur“, það er
kjörorð snillinganna þar austurfrá.
Marga haglega gerða hluti sá eg þarna á bæjunum.
Man eg til dæmis eftir hefli, sem eg sá undir Eyjafjöllum.
Var stokkurinn úr messing og tönnin skrúfuð í. Varð
ekki annað séð, en hefillinn væri útlent verksmiðjusmíði
af vönduðustu gerð. Þenna hefil hafði smíðað Sigurjón
Magnússon (bóndi að Hvammi undir Eyjafjöllum. En
hann er bróðir Einars Magnússonar vélsmiðs í Vest-
mannaeyjum, sem smíðaði brimbátinn er áður hefir ver-
ið getið um í dagblöðum vomm. En nú er bátur þessi