Andvari - 01.07.1962, Qupperneq 66
176
SIGUUBJÖRN RINARSSON
ANDVARt
ar allt cr rakið til rótar, eru upptök mann-
legra glapa og lánleysis svo djúpstæð í
sameiginlegum jarðvegi, sem vér eigum
öll aðild að og berum öll ábyrgð á, að
enginn getur sagt með Pílatusi: Sýkn er
ég, þetta kemur mér ekki við.
Þér kannizt við orðið erfðasynd, hug-
tak, sem oft var misskilið og oft afflutt.
Það er þetta, sem í því felst: Smán manns-
ins er líka mín og þín, eins og tign manns-
ins, helgi guðlegs uppruna og köllunar,
cr á bak við hvert mannlegt auglit, hversu
afskræmt sem það kann að vera.
Þetta sjálfdæmi og þetta mat gerir sam-
vizkuna órólegri, af því að það lífgar hana,
það gerir blóðið heitara og heilla, því að
það er að lifa samábyrgð og samsemd
með öllum mönnum.
Og svo að lokum það, sem er stærst og
helgast allra leyndardóma: Guð gerðist
sjálfur samábyrgur, hinn hreini og lieilagi
gerði sig samsekan oss — ekki af því, að
hann sé sekur um neitt, heldur af því, að
hann finnur til með oss.
Þér kannizt líka við þessa hugsun, hún
er kölluð friðþæging, líka oft miskilin,
jafnvel afflutt. En engin hugsun var
frjórri í sögu líknarmálanna. Elin guð-
dómlega samkennd er svo alger, að heil-
agur Guð gerist bróðir syndarans og segir
við hann: Þín sök er mín, og við alla
þjáða: Þín þraut er mín.
Þetta hefur krossinn boðað. Og þeir
voru margir, sem lifðu við fótskör kross-
ins þá einingu við þann mátt, sem líður
í allri þraut, að hugur þeirra varð skap-
andi orkulind kærleikans, samúð þeirra
varð gædd guðdómlegu hugviti og fórn-
fýsi í þjónustu líknseminnar. Þeir fundu,
að það er ósegjanleg heilög náð að mega
hjálpa og geta hjálpað.
Ollum, sem vinna að mannúðarmálum,
er ljóst, að vakning samvizkunnar og
samkcnndarinnar er frumforsenda allrar
slíkrar viðleitni, ef hún á að komast
áleiðis. Og þeim verður líka ljóst, fyrr
eða síðar, að vér þurfum að þreifa eftir
þeirri kviku hjálparviljans, sem hefur fjör-
gjafa sinn frá hinni djúpu lind Krists-
trúarinnar.
Eins er oss vant og án þess erum vér
snauð, hvað sem lífskjörum liður, og það
er trú, sem starfar í kærleika.