Andvari

Volume

Andvari - 01.07.1962, Page 98

Andvari - 01.07.1962, Page 98
208 SVERÍUR KRISTJÁNSSON ANDVAllI urinn eða Hólmsverzlun. Hólmurinn, sem hér er átt við, var vestan Efferseyjar- granda, og eru þar nú ekki annað eftir en sjóbarin sker, sem koma upp úr sjó við fjöru. Á 17. öld voru verzlunarhúsin flutt út í Effersey, en verzlunarstaður- inn kallaður eftir sem áður Hólmurinn, og Reykjavíkurhöfn hét Holmens Havn í rnunni þeirrar tíðar manna. Rlólmskaupstaðar er fyrst getið á öndverðri 16. öld, virðist þá vera orðinn helzti verzlunarstaður við Faxaflóa, og höfðu þýzkir kaupmenn frá Brimum þar aðsetur. Þegar einokunarverzlun var komið á 1602 sigldu þangað Málmeyjarkaupmenn. Um miðja 17. öld berast miklar kvartanir vegna verzlunarinnar í Hólminum. Til er kæra frá Þórði Hinrikssyni sýslu- manni í Borgarfjarðarsýslu yfir höndlun í Hólmskaupstað: Þar er maur í méli, járnið ónýtt, rúgmjölið mengað pækli úr salt- og síldartunnum, brennivínið stundum hlandað sjó eða vatni. Og segir í kærunni með nokkrum þótta: Svo höfum vér og nægan skilning fengið sjálfir að hlanda brennivínið eftir vorri hugarlund. Þá var einnig sagt, að mjöðurinn, sem Hólmskaupmenn seldu, líkt- ist ediki, en danskt öl væri selt sem lýbskt, og þóttu það vond kaup. Sarna ár og kæra þessi var skrifuð var „borið fram í lögréttu til ákenningar og prófs víns úr Hólmi, og virtist þeinr það smökkuðu, hvorki hafa þann farfa eður smekk, sem almennilegt vín er vant að hafa, og af prestunum er communicerað söfn Jo << uounum. Reykjavík og þær sveitir, sem sóttu verzlun í Hólminn hafa því eklci farið varhluta af blessun einokunarverzlunarinnar, og sömu sögu höfðu flestar byggðir íslands að segja. Það er ekki fyrr en heilli öld síðar, að aftur heyrast kvartanir um verzlunarhagi í Hólmskaupstað, nokkru eftir að byggingar stofnana Skúla Magnússonar risu þar upp og ný öld virtist gengin í garð í hinum gamla verzl- unarstað. í fyrsta skipti í sögu íslands skyldi komið upp verksmiðjuhúsum að þeirrar tíðar hætti, iðju, sem rauf ramrna hins forna handiðnaðar sveitanna. Til þess þurfti að reisa mörg ný hús á hinni gömlu landnámsjörð, og tók Skúli til óspilltra málanna. Hús stofnananna, eða „Innréttinganna" eins og þær voru venjulega kall- aðar, voru byggð meðfram Aðalstræti, er varð fyrsta gata Reykjavíkur, upphaf- lega aðeins troðningur eftir verkafólk stofnananna. Húsin lágu frá suðri lil norðurs og skulu þau talin hér í þessari röð: 1. íbúðarhús forstjórans, austan núverandi Aðalstrætis og skammt norður af gamla kirkjugarðinum, úr timbri, fyrir norðan það var fjós; 2. dúkvefnaðarhús, 3. klæðavefnaðarhús, bæði úr timhri, vestan Aðalstrætis og andspænis íbúðarhúsinu; 4. spunahús, lá upp með Grjótagötu, sennilega úr torfi og grjóti; 5. geymsluhús, lá sunnan Grjóta- götu, varð síðar lóskurðarstofa, var úr tirnbri; 6. smíðahús, 7. sútarahús, 8. beykis- búð, 9. eldhús, 10. búr, 11. eldiviðarhús og 12. hjallur. Sjö hin síðasttöldu hús
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.