Andvari - 01.01.1971, Síða 131
ANDVARI
UM ÞJÓÐLEGAN METNAÐ JÓNS SIGURÐSSONAR
129
og vinna saman, af því að fari það og veri sem maður getur kostað 200
dölum misreitis, nema manni svíði á eftir urn langan tíma. Það væri
gaman, ef við hefðunr ráð til að halda tólf berserki gráhærða, og tólf
svart'hærða, væri svo hér og þar á víxl til að prédika og kenna fólki guðs
götu í sannleika um landsins gagn og nauðsynjar. Þá er ég hræddur um,
bróðir, að við yrðum meðal hinna gráhærðu berserkjanna og nrundum
vilja ferðast saman allt hvað af tæki. Nú hefðum við samt mátt taka af
hestum okkar í vetur, því Danir hafa verið svo innibyrgðir scm otur í
keplu“ [o: gildru].
24. Til Gísla Hjálnuirssonar læknis (I, 401).
Kaupmannahöfn, 28. febrúar 1866.
„Það er ahnennt mál, að þessir, sem voru að káfsast upp á mig, hafi
verið Gísli Biynj[ólfsson | og Grímur. Það gerir mér nú ekki til, því það
er engin skömm þó manni sé álasað fyrir að maður fylgi sínu landi eigin-
girnislaust, þó enda væri með hlutdrægni; en það skaðar nokkuð okkar
mál, þegar þeir, sem ætlast mætti til að fylgdu þeim, snúa útúr og stinga
sína eigin menn aftan að. Hér hefir jietta fremur bætt fyrir mér meðal
landai minna, og svo vona ég verði á íslandi líka, en það væri samt betra,
ef allir drægi sama taum, og mundi bæði flýta málum okkar og bæta
þau heldur, en hér er allra krafta þörf, þar sem við ramman er reip að
draga.“
25. Til Gísla Hjálmarssonar læknis (I, 406).
Kaupmannahöfn, 17. apríl 1866.
„Eftir mínu áliti þá er það vitlaust að reyna að hlífast sem mest og
ímynda sér, að Danir fyrir eðallyndi sitt afstandi allt hvað þeir sjái okkur
fyrir 'beztu. Þeir eru að minni þekking fullt eins harðir og ósveigjanlegir
eins og hverir aðrir og verri, þar sem þeir hafa maktina, og það er ekkert
annað ráð en að koma sér svo fyrir, að þeir sjái það eina bezta fangaráð
að sleppa okkur. Þetta getum við, og þetta ættum við að gera.“
26. Til Páls stiídents Pálssonar (II, 66).
Kaupmannahöfn, 17. apríl 1866.
Hið íslenzka bókmenntafélag átti um þessar mundir fimmtugsafmæli, var
stofnað 30. niarz 1816.
„Við héldum hátíð okkar í Bókmenntafélaginu 13. apríl, og ég pré-
9