Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1981, Page 142

Andvari - 01.01.1981, Page 142
140 HOLGER KJÆR ANDVARI bernskuleikina. Auðvitað á þetta ekki einungis við um íslenzk börn; hins vegar er það engin tilviljun, hve leikir barna eru samtvinnaðir bókmenntum á Islandi, þar sem þær eru einn sterkasti þáttur- inn í lýðmenntuninni. En lífið er ekki bara leikur, og ekki leið á löngu, unz íslenzku börnin ráku sig á, að þeim var ekki ætlað að leika sér, heldur að gera gagn. Gömul vísa sýnir, hve snemma telpur áttu að taka til hendinni: Fyrst þú ert komin á fjórða ár, fara áttu að vinna, þú átt að læra listir þrjár, lesa, prjóna og spinna. Heimildarmenn mínir eru tveir og annar skrifar fimmta ár í stað fjórða. Hvorugt mun vera sannleikanum sam- kvæmt; enda þótt börn hafi ekki verið farin að leika þessar listir á svo ungum aldri, er enginn vafi á, að þau hafi þá verið byrjuð að ’hjálpa eitthvað til á heimilinu. Margir kváðust ekki hafa mátt leika sér nema á veturna. Þegar full- orðna fólkið hallaði sér í rökkrinu og veðrið var gott, notuðu börnin tæki- færið og fóru út að leika. Þegar snjór var á jörðu og skautasvell, renndu þau sér á sleða og skíðum og skautuðu á hrossleggjum. A sumrum var enginn tími til leika nema á sunnudögum, skrif- ar bóndi í Þistilfirði. Þegar hann var strákur, reyndi hann því eins og séra Magnús og bræður hans að gera vinn- una að leik með því að gæða hana nýju lífi. Þegar hann var að setja upp hey, ímyndaði hann sér til dæmis, að hann væri að byggja Péturskirkjuna í Róm. En þó að leikur og vinna fylgdust að í fyrstu, fengu skyldustörfin smám sam- an yfirhöndina. Með því fyrsta sem börnin lærðu að gera innanhúss var að halda í hespu fyrir móður sína og tæja ullina, þ. e. a. s. tæta hana í sundur og greiða úr henni. Auk þess lærðu telpurnar að prjóna og seinna að tvinna og spinna. Bóndi úr Þingeyjarsýslu játar, að sér hafi alltaf leiðzt að tæta ullina, þegar hann var krakki. Hann reyndi að hroða því af, og útkoman varð ekki góð, enda sagði móðir hans, sem fylgdist með vinnubrögðunum: „Eg er hrædd um, að konan þín verði tjásuleg eftir þessum sneplum að dæma.“ Það mátti nefnilega marka það af ullinni, hvort ti'lvonandi eiginkona piltanna yrði lagleg eða ljót, sagði gamla fólkið. Stráksi vildi ekki láta þetta sannast á sér og tautaði, að konan hans yrði áreiðanlega falleg. „Viltu kannski, að hún verði eins og hún —?“ og nefndi ófrýnilegustu kerlingu, sem hann þekkti. Nei, það vildi piltur ekki og vandaði sig við verkið upp frá því. A vetrum voru útistörfin fólgin í því að aðstoða við skepnuhirðingu, gefa kúm og kindum og brynna þeim. Á vor- in og snemmsumars var algengt að láta börn vaka yfir túninu, svo að féð kæmist þangað ekki til að bíta grasið, sem átti að slá og þurrka. I þá daga voru túnin ekki girt, og þurfti því að vaka yfir þeim dag og nótt. Fullorðna fólkið hafði nóg annað að gera, og voru því smákrakkar settir í þetta verk. Þau voru líka snemma látin reka kýrnar á beit og sækja þær á kvöldin, auk þess sem þau hjálpuðu til við sauðféð. Þegar sláttur hófst, eignuðust þau litlar hrífur, og 7-8 ára gömul voru þau farin að raka, snúa og taka saman hey- ið. Um 10 ára aldur var strákum fengið orf og ljár og þeir látnir slá með vinnu- mönnunum. í sveitinni eru miklar vega- lengdir, langt til næsta nágranna og langt á beitarhús og engjar. Þá var gott að senda krakkana, ýmist með mat til fólks- ins, sem var að vinna drjúgan spöl frá bænum, eða með bréf og skilaboð, ef
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.