Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1992, Blaðsíða 62

Andvari - 01.01.1992, Blaðsíða 62
60 GUNNAR STEFÁNSSON ANDVARI fyrri tíð en ýmsum lesendum mun þykja rétt: meira að segja Alþýðubókin telst aðeins að litlu leyti sósíalískt verk. Sönderholm fjallar einna best um seinni verk Halldórs. Einkum er löng og rækileg greiningin á Kristnihaldi undir Jökli, síðasta meiri háttar skáldverki höfundarins. Sú bók kom mörg- um unnendum hans ærið framandlega fyrir sjónir og þurfti tíma til að sanna sig í vitund manna, en áhugi á þessu launungarfulla verki hefur sí- fellt farið vaxandi. Sést það meðal annars á því að á Halldórsstefnu sem Stofnun Sigurðar Nordals efndi til í sumar voru fluttir um það þrír fyrir- lestrar og er einn þeirra að finna í þessum árgangi Andvara. Bókum íslenskra fræðimanna um Halldór hefur smám saman fjölgað. Ei- ríkur Jónsson reið á vaðið og greindi heimildir skáldsins við samningu Is- landsklukkunnar í ritinu Rœtur íslandsklukkunnar (1981). Arni Sigurjóns- son gaf út tvær bækur undir nafninu Laxness og þjóðlífið (1986-87). I fyrri bókinni rekur hann bókmenntakenningar sem gætti á Islandi á árunum milli stríða (sjá grein Vésteins Olasonar í Andvara 1987). I seinni bók Arna er fjallað um pólitísk viðhorf í verkum Halldórs á þessum árum, einkum Sjálfstæðu fólki. Sigurður Hróarsson ritaði um Halldór Laxness og Sovét- ríkin, það er afstöðu Halldórs til rússnesks kommúnisma, en það er efni sem þarfnast miklu nánari og gagnrýnni skoðunar (sjá fyrrnefnda grein Vé- steins Ólasonar), - enda eru nú að koma fram í dagsljósið skjöl í safni í Moskvu sem að því lúta. Enn gaf Halldór Guðmundsson út bók um Vefar- ann mikla frá Kasmír, með nafni af frægum upphafsorðum ritdóms Kristj- áns Albertssonar, „Loksins, loksins“ (1987). Um síðastnefndu bókina spunnust nokkrar þrætur í Skírni og Tímariti Máls og menningar milli höfundar og Astráðs Eysteinssonar. Snerust þær um það hvort Vefarinn gæti talist upphaf módernískra bókmennta í lausu máli, aðallega af því að hann átti sér ekki beint framhald, hvorki í verkum Halldórs Laxness næst á eftir né í verkum annarra. Þetta sýnist mér deila um keisarans skegg, að því leyti að hvorttveggja er óyggjandi: Vefarinn plægði jarðveg nútímaskáldskapar á íslandi og svo hitt að bókmenntir í lík- um stíl voru ekki samdar um sinn. Það gilti bæði um ljóðlist og sagnagerð skáldsins á þessum tíma: „Unglingurinn í skóginum“ átti sér ekkert fram- hald heldur. Halldór Laxness flutti í þessum verkum anda samtímabók- mennta og hræringa í Evrópu heim til Islands, í það þrönga og einangraða þjóðfélag sem þar ríkti. En hvort sem það stafaði fremur af því að þjóðfé- lagið var ekki móttækilegt eða því að áhugamál Halldórs breyttust - líklega hvoru tveggja - þá tók skáldið aðra stefnu og væri fávíslegt að harma það, slíkan auð sem hann færði þjóðinni næstu áratugi með sínum miklu epísku verkum. Það er fróðlegt að hyggja að því hvernig íslenskir lesendur hafa tekið verk-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.