Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1992, Page 77

Andvari - 01.01.1992, Page 77
andvari „ALT ER LYGI NEMA ÁSTIN" 75 Nietzsche án minnstu íróníu: „Ég er einn af þessum stóru, sterku mönnum, sem heiminn vantar til þess að standa í hlífðarlausri baráttu við óvini mannkynsins" (Bls. 167) „En einmitt með slíkri margröddun er írónía byggð inn í formgerð verksins, og þannig fer stöðugt fram niðurrif hinnar upphöfnu og framúrskarandi hetju.“ (4, bls. 297) Það fer ekki á milli mála að í huga Astráðs er Steinn Elliði „upphafin framúrskarandi hetja“ (4, bls. 297) þó hetjan sé stundum rifin niður í verkinu. Diljá er að mati Astráðs steinrunnin í sögulok. Hann sýnir konunum litla athygli og þar með litla virðingu í túlkun sinni. Halldór Guðmundsson hefur samúð með Diljá en Astráður ekki. Þeir Halldór og Ástráður eru ósammála í afstöðu sinni til Diljár en Ástráður gagnrýnir Halldór þó aðallega fyrir bókmenntasögu- skoðun hans í grein sinni. Sú gagnrýni verður ekki tíunduð frekar. Árni Sigurjónsson skrifar yfirlitsrit um verk Halldór Laxness og tengir þau íslensku þjóðlífi. Árni sýnir yfirborðsmynd af verkum Halldórs Lax- ness en styrkur Halldórs liggur undir yfirborðinu og þess vegna er hætt við að yfirlitsverk, eins og verk Árna Sigurjónssonar, einfaldi verk höfundar og villi lesendum sýn. Árni fer fljótt yfir sögu í túlkun einstakra verka Hall- dórs og tengir þau átökum í þjóðlífinu en skilur eftir það sem snýr að til- finningalífi mannsins. Túlkun Árna á einstökum verkum er grunn en ekki verður lagt mat á lýsingu hans á þjóðlífinu. Árni fellur í sömu gryfju og aðrir karlmenn, sem hafa skrifað um Vefarann mikla frá Kasmír. Hann sér ekki Diljá og þess vegna ekki nema lítinn flöt af Steini Elliða. Árni segir um Vefarann: „Niðurstaða Vefarans mikla getur ekki orðið að skáldskapur sé ómerkur, því verkið sjálft er einmitt merkur skáldskapur. F»að er þess vegna sem Vefarinn mikli frá Kasmír fjallar ekki um leið Steins Elliða í klaustrið heldur ekki síður leið hans út úr því.“ (2, bls. 29) Árni lítur á Stein Elliða sem meginviðfang höfundar og Diljá er aðeins til sem viðfang Steins Elliða. Hún á ekki sjálfstæða tilveru. Árni segir: „Þessi hugsun hans um valdið birtist ekki síður í sambandinu við Diljá. Hún er leirinn í hönd- um hans; þess vegna vill hann hana ekki. Hún veitir ekki nægilegt viðnám, er ekki verðug hans, finnst honum. En þó sigrar hún hann kannski með mýkt sinni, svo talað sé í anda taóismans.“ (2, bls. 29) Kannski sigrar Diljá Stein Elliða með mýkt sinni, en í hverju felst sigur hennar? Lesandinn fær ekki nánari skýringu á hugsanlegum sigri Diljár. Diljá er ekki verðug at- hygli Árna Sigurjónssonar. Diljá er ekki til. Halldór Guðmundsson hefur eins og Árni Sigurjónsson skrifað yfirlitsrit um verk Halldórs Laxness. Rit Halldórs Guðmundssonar um Vefarann sýnir eins og rit Árna Sigurjónssonar yfirborðsmynd sögunnar, en þó að- eins þá mynd sem Halldór Guðmundsson sér. Halldór les svipaða sögu út úr Vefaranum mikla og karlmennirnir sem nefndir hafa verið. í þeirra huga er Vefarinn mikli fyrst og síðast saga Steins Elliða. Halldór Guð-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.