Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1992, Side 112

Andvari - 01.01.1992, Side 112
110 ÞORSTEINN GYLFASON OG SIGURÐUR STEINÞÓRSSON ANDVARI á hverju ferli er aðeins ein rétt - allar hinar eru rangar, þótt misrangar geti verið. (Það er t.d. minna rangt að segja að 2 x 2 séu 3,997 en 17) og á end- anum munu menn komast að hinu sanna. Darwin sagði eitthvað á þá leið, að rangar kenningar séu meinlausar, því maður muni ganga undir manns hönd við að afsanna þær, en rangar athuganir eða mælingar geti dregið langan óhappahala á eftir sér. í hvert sinn sem vísindamaður gerir uppgötvun, hafa orðið raunveruleg- ar framfarir í vísindunum, við erum því skrefi nær fullkominni þekkingu, og aldrei verður horfið til baka aftur til tímans fyrir þessa uppgötvun. Með listir er þessu ólíkt farið, því í þeim er ekkert algilt rétt eða rangt, fallegt eða ljótt. Japönum þykir öngl sitt fallegt af því þeir hafa alizt upp með því, en okkur vestræn tónlist af sömu ástæðu. Og nú eru vaxnar úr grasi barnaheimila- og popprásakynslóðir sem aðhyllast frumstæðan gít- arslátt og grenj vegna síns „slæma“ uppeldis. Grikkir héldu að vísu, að til væri algildur mælikvarði á fegurðina, t.d. gullinsnið, en ég er ekki trúaður á slíkt. Þannig er fyrsti munurinn á vísindum og listum sá, að í vísindunum er til óháður og algildur mælikvarði, en í listunum er hann í bezta lagi hug- lægur. Af því leiðir, að í listum er tæplega hægt að tala um framfarir heldur aðeins um breytingu: Beethoven er ekki betri en Bach, heldur yngri og öðruvísi; Schubert, Wagner eða Brahms ekki betri en Beethoven, og Atli Heimir ekki betri en Stravinsky eða Brahms. Allir kunnu eða kunna þessir menn þó sitt fag og vissu deili á því sem á undan var gengið. í listunum, eins og í tízkunni sem er náskyld, er kúnstin ekki nauðsynlega sú að byggja ofan á það sem á undan var komið, heldur láta sér detta eitthvað „nýtt“ í hug. Auðvitað má hugsa sér framfarir í listum að því leyti, að tækni fer fram, betri litir, betri strigi, ný og betri hljóðfæri - og rafeindatæknin býður upp á möguleika sem hefðbundin hljóðfæri gerðu ekki, þannig að þar gæti orð- ið um eitthvað raunverulega nýtt að ræða þann dag sem rafeindatónlistin eignast sinn Bach. Og þar er komið að grundvallarmun lista og vísinda: svo lengi sem list-tæknin breytist ekki að marki, fer ágæti listaverksins eftir at- gjörvi listamannsins eins - listaverk er einstaklingsbundið afrek - þótt formið fari eftir því á hvaða tíma listamaðurinn er uppi, nl. hvað er í tízku á hverjum tíma. I vísindunum er þessu gerólíkt farið: á hverju stigi þekk- ingarinnar er það ekki annað en tímaspursmál hvenær næsta uppgötvun verður nauðsynleg afleiðing þess sem á undan var komið, og nánast tilvilj- un hver gerir þá uppgötvun - Newton eða Leibnitz, Darwin eða Wallace. Sumir halda því að vísu fram, að Einstein hafi verið svo sérstakur, að án hans hefðu getað liðið áratugir eða jafnvel aldir áður en annar kæmi upp með afstæðiskenninguna, en á það ætla ég ekki að leggja dóm. Á líkan hátt er vafasamt að við hefðum eignazt „annan“ Jónas Hallgrímsson, en á þeim
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.