Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1992, Síða 117

Andvari - 01.01.1992, Síða 117
andvari SAMRÆÐA UM LIST OG VISINDI 115 dæminu réttilega með því að segja að símaskrár hafi ekkert með náttúru- vísindi að gera. Þá er að taka önnur dæmi af vitneskju eða fróðleik. Úr- smiður nokkur í Reykjavík hélt í áratugi dagbók yfir fylgnina með fjölda sprunginna fjaðra í úrum bæjarbúa og breytingum á loftþrýstingi sem hann hafði fyrir sér á loftvog á verkstæði sínu. Annar nafnkunnur Reykvíkingur hélt dagbók í jafnmarga áratugi um krókusa í görðum í Reykjavík. Hann skráði hjá sér hvenær þeir gægðust upp úr jörðinni á vorin. Ég held því fram að dagbækur þessara ágætu manna hafi ekkert vísindalegt gildi þótt þær fjalli um virðuleg vísindaleg efni eins og loftþrýsting og vorgróður. (Mér hefði þótt gaman að sjá Sigurð hafa gert annanhvorn eða báða að heiðursdoktorum fyrir það sem eftir þá liggur.) Og þetta vil ég hafa til marks um að það sé villandi - en ekki þar fyrir rangt eða að minnsta kosti ekki alrangt - að segja leitina að sannleikanum vera aðalsmerki vísindanna öllu öðru fremur. Ég hef gefið tvennu undir fótinn. í fyrra lagi því að það er að minnsta kosti oft sambærileg hugsun að verki í vísindalegri uppgötvun og í tónsmíð eða kvæði. Sumar vísindalegar uppgötvanir sem ég hef lesið um - greining- in á ofurleiðurum frá allra síðustu árum, eða uppgötvun Watsons og Cricks á músastiganum sem ég kalla og Sigurður nefndi gormana góðu, og hell- ingur af uppgötvunum sem verið er að gera á þúsundum rannsóknastofa um allan heim á hverjum degi þykist ég vita því að ég er ekki að hugsa fyrst og fremst um vísindaleg afrek - eru sambærilegar við það að finna rétta rímorðaröð fyrir sonnettu eða rétta hljómaröð fyrir sónötubút: að reyna að fá hlutina til að falla saman í einfalt, fallegt kerfi, samstæða heild. í síðara lagi hef ég gælt við þá hugsun að þó svo að listir skeyti oft ekki um sannleikann - raunsæjar skáldsögur og landslagsmálverk eru þó minnis- verðar undantekningar - þá skeyta þær um skilning í mörgum skilningi og að mörgu leyti. Og það gera vísindin einmitt líka. En ég legg ríka áherzlu á að skilningur er margvíslegur. Það er ekkert eitt sem heitir að skilja: að skilja sólkerfið, skilja vél, skilja kvæði, skilja sönnun í stærðfræði, skilja annað fólk, skilja málið sem við tölum. En mér finnst það markverð at- hugasemd að list er öðrum þræði skilningsþraut - alveg eins og vísindi - og stundum er hún, eins og vísindin, tæki til að skilja eitthvað annað líka, að minnsta kosti til að sjá það í nýju Ijósi, til dæmis mosa, götu eða ský sem listmálari fæst við að ná tökum á. Annars veik Sigurður að öðru efni: sambandi nútímalistar við vísindi og sérstaklega þó tækni sem oft er talin óaðskiljanleg frá vísindum. Ég á engin svör við uppástungum Sigurðar um rafeindatónlist eða klessumálverk. Ég hef ekki hugboð um af hverju nútímalist er eins og hún er. Nema að einu leyti. Þessi list á sér samfellda sögu, og það er að minnsta kosti svolítið vit í þeirri sögu. Til dæmis er mikið vit í sögu myndlistarinnar í Evrópu síðustu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.