Andvari - 01.01.1992, Page 141
ANDVARI
AFREK í ÍSLENSKUM MENNTUM
139
Svo kvað Evrípídes. Og margt var býsna vel kveðið, ekki síst kórljóðin.
Leikrit hans urðu því vinsæl á öldunum eftir dauða hans. Nítján níutíu og
tveggja Ieikrita sem honum voru eignuð varðveittust fram á okkar dag, en
aðeins sjö af um níutíu leikritum Aiskhýlosar og sjö af meira en hundrað
og tuttugu leikritum Sófóklesar.
V
Á dögum Aiskhýlosar og framan af ævi Sófóklesar var harmleikurinn enn í
deiglunni og báðir áttu þátt í að móta form hans. Evrípídes breytti því
ekki, en viðfangsefnin urðu fjölbreyttari. Eftir hans daga beindist hugur
snjöllustu og frumlegustu manna að öðru. Orðið var ekki framar alfrjálst.
Gamanleikrit breyttust úr ádeilu í borgaralega kómedíu dæmigerðra
manna og athafna, og vaxtarskeið harmleiksins var á enda runnið.
Á grísku nefndust leikrit þessi „tragódía“. Við höfum erft nafnið og hug-
takið, og á íslensku kennum við þá til harms eða sorgar. Pað sér á að orðið
hefir breytt ögn um merkingu, því ekki enda því nær allir grískir harmleikir
hörmulega. Nafnið er sprottið af upprunalegu ytra formi og hafursgrímu
leikenda sem lögðu af hversdagslegt mannlegt eðli sitt og tóku sér gerfi og
innræti vætta. Leikirnir voru trúarathöfn guðinum Díonýsosi til heiðurs.
Allir fjalla þeir með einhverjum hætti um samskipti guða og manna, um af-
skipti guða af lífi manna, um trúarleg og siðræn lögmál og vandamál, um
hlýðni manna við guðina og sekt þeirra ef út af ber. Metnaður og hæfileik-
ar höfunda, og greind og vandfýsi áheyrenda ollu því að þeir urðu óbrot-
gjarnir minnisvarðar um eitt frjóasta skeið mannsandans, fyrstu öld lýð-
ræðis, 5. öld f. Kr. í Aþenu. Þar má nema ef næmt er lesið og hlustað
ávæning af lífsskoðun höfunda og samtímakynslóðar. Fátt er þó ótvíræðara
en svo að niðurstaðan er háð túlkun hvers og eins. Að höndla skáldskap er
eins og að handsama sólargeisla eða eins og óviti vildi handsama fleygan
fugl, svo notuð sé grísk líking.
Höfundum er öllum annt um lýðræðið, og þeir eru hreyknir af kostum
þess.31 Til að mynda lýsir Aiskhýlos í „Meyjar í nauðum“ fyrirmyndarkon-
ungsríki þar sem konungur tekur enga ákvörðun án samþykkis alþýðu á
þjóðfundi. Nauðleitarmenn hitta fyrir einhuga þjóð og forystu, og eiga
bágt með að skilja afstöðu konungs. Hann svarar hjálparbeiðni þeirra með
orðunum: „Engu vil ég lofa fyrr en leitað er / að ljósum vilja borgaranna
um þetta mál.“ Leir eru einræðinu vanastir og verður að orði: „Sjálfur ertu
ríkið; fólkið það ert þú; / því þú ert herra og lýtur engum dómara.“32 Þegar
þetta var ritað var elsta lýðræðisríki heims aðeins rúmrar hálfrar aldar
gamalt og gat enn vakið furðu. Sófókles virðist vera Aiskhýlosi sammála.