Andvari - 01.01.1914, Síða 14
10
Steiugrímur Thorsteinsson.
í tveim mikilsverðum nefndum átli Steingrímur
sæti: sálmabókarnefndinni og þýðingarnefnd gamla
testamentisins. >
Sálmabókarnefndin var skipuð af Pétri biskup
Péturssyni í marzmánuði 1878. Helgi Hálfdánarson
lector var formaður hennar, en Steingrímur ritari.
Auk þeirra voru í henni þessir jíreslar: sr. Valdimar
Briem, sr. Matthías Jochumsson, sr. Stefán Thorar-
ensen, si’. Björn Halldói'sson og sr. Páll Jónsson.
Stai'faði nefndin ein 8 ár, og lenti eigi lítið starf á
ritaranum, þótt sr. Helgi hafi vafalaust starfað mest
þeirra allra. Ái'angui'inn af stöi’fum nefndarinnar var
hin nýja sálmabók, er kom út fyrsta sinn 1886.
Ekki hafði Steingrímur lagt til nema 6 sálma (4
frumsamda, 2 þýdda). Ýmsir þýddir sálmar eftir
Steingrím liafa síðar birzt á prenti. Mjög vel hafði
sr. Helgi látið af starfi Steingi'íms í nefndinni, eftir
því sem prófessor Jón Helgason hefir sagt mér. Má
nærri geta, hve mikils virði hefir verið að njóta
smekkvísi hans um sálmavalið.
í nefnd þeirri, er hafði eftirlit með þýðing gamla
testamentisins og yfirfór hana alla nákvæmlega jafn-
óðum á vikulegum fundum, var Steingrímur stöðug-
lega, ásamt þeim Hallgrími biskup Sveinssyni og
Þórhalli Bjarnarsyni, þáverandi forstöðumanni presta-
skólans. Stóð þýðingarstaríið yfir frá því haustið
1897 til voi'sins 1907. Þó varð hlé á því um eins
árs skeið, er aðalþýðarinn var erlendis (frá því í apríl
1899 til marzmánaðarloka 1900). Á þessum árum
kyntist eg Steingrími bezt. Hann var þá kominn á
efri ár. Samt var hann alt af jafn-áhugasamur og
ógleyminn á fundina. Aldrei varð vart við þreytu
lijá honum eða leiða á starfinu. Og eru þó sum rit
gl. tm. eigi skemtileg. Hann var stórhrifinn af sum-
um skáldritum gl. tm., svo sem Jobsbók, en einkurn
þó af spámönnunum. Um einn kaflann í Jesaja sagði