Andvari - 01.01.1914, Page 21
Rannsókn dularfullra fyrirbrigða.
Eftir
próf., dr. Ágúst Bjarnason.
Erindi flutt fyrir Alþýðufræðslu Stúdentafélagsins.
Andatrúarmenn vorir hafa nú aftur upp á síð-
kastið látið allmikið til sín heyra bæði í ræðu og riti.
Þeir hafa sagt oss frá ýmsum dularfullum fyrirbrigð-
um og skýrt þau öll á sína vísu, litið á þau ýmist
sem sannanir fyrir ódauðleika sálarinnar eða verlc-
anir af hálfu framliðinna. Ég hefi nú um hríð hlusl-
að þegjandi á mál þessara manna og lesið það, sem
þeir hafa ritað, og mér dylst ekki, að þetta er orðið
þeim hjartfólgið alvörumál. Það ætti því illa við að
ráðast á þá með óvægilegum orðum, þótt maður væri
þeim ekki samdóma í öllu. En hitt hefir mér ekki
heldur dulist, að rök þau, sem þeir hafa fært fyrir
máli sínu, eru veik og hin sálfræðilega þekking af
skornum skamti. En sérstaklega hefir mig þó furðað
á því, hversu lítinn gaum þeir virðast gefa þeim
visindalegu rannsóknum, sem fram hafa farið og eru
að fara fram á fyrirbrigðum þessum, svo og þeim
skýringartilraunum, sem sérfræðingar á þessi fyrir-
trigði hafa látið mönnum 1 té. Úr þessu ætla ég nú
að reyna að bæta ofurlítið.
Raunar hafa andatrúarmenn iðulega haldið fram
Andvari XXXVIII. 2