Andvari - 01.01.1914, Page 53
Vetrarseta með Eskimóum.
Eftir Stefánsson.
í íleslum leiðangrum í norðurvegu hafa verið
lærðir menn á dýr og grös og steina. En í þeirri ferð
sem nú stóð til1 * * * *) skyldi mönnum gerl jafn hátt undir
höfði og fuglum eða fiskum, því að nú var í fyrsta
sinn ráðinn vísindamaður í slíka för, er hefði lær-
dóm til að rannsaka um þá þjóðflokka, er fyrir kynnu
að liittast, ekki síður en dj7rafræðingar og jarðlaga
til sinna rannsókna, og sá sem þetta ritar, var svo
heppinn, að verða fyrir valinu.
Það virðist ekki óþarfi að geta þess stuttlega,
að það er ekki síður merkilegt fyrir sögu mann-
kynsins, að þekkja ætterni og atgervi þeirra þjóð-
ílokka, sem nú eru uppi á bernskuskeiði, hugsunar-
hátt, sköpulag og siðu (ethnology) heldar en fornar
leifar um háttu þeirra (archæology). Vér finnum
axir og soðkatla af sleini í haugum og hellum á
Englandi og í mölinni á Signubökkum, og megum
af þeim hlutum skynja nokkuð um athafnir forfeðra
vorra, sem nú eru löngu gleymdir. En hugarfar og
háttu þeirra skynjum vér bezt með því að rannsaka
1) Þegar V. kom úr fyrstu norðurför (1906—7) sinni skrif-
aði hann margar ritgerðir um hana í mánaðarritið Harper’s
Monthly Magazine og er þessi ein þeirra. Hann hafði sagt frá
upptökum og aðdraganda ferðarinnar í næsta hefti á undau.
Andvari XXXVIII. 4