Andvari - 01.01.1914, Síða 112
108
Bréf frá Baldvin Einarssyni.
Paö er betra aö menn tali saman, þá batnar þaö opt sem
annars mundi úlma í öskunni alla æfl. — Þér spyrjið, hvörj-
um landpínganefndirnar egi aö gefa ráö? Svar: f*eim sama
sem embættism(ennirnir): stjórninni, collegiunum, stats-
ráðinu, kóngi. Hvört form þíngin öölast, veit eg ei, ekki
heldr hvört þau eiga að njóta Publicitets? Pað seinna
mun valla veröa, þóft hinir vísu menn eptir sögn hafl
kraflst þess. Yfir slíku hvilir enn kolsvart myrkr. Tilskip-
unin um allt það kemr líklega í vetr.
Eg bæti því hér viö, að eg held að það verði efalaust
upp á teníngnum fyrir Island sem verst gegnir, nl. að við
fáum hluttekníng í þínginu í Danmörku eins og tilsk. 28
Maii segir, því valla verðr íslandi slept undan. Betr að
þið hefðuð allir höfðingjarnir beðið um landþíng á íslandi,
það hefði þó verið miklu betra, þó það eins og allt í ver-
öldinni kynni að hafa liaft sína annmarka. Pað lakasta er
fyrst í stað, að fáir mundu vita gjörla, livörnig þeir skyldu
haga sér í landþínginu, eða hafa vit á öllu sem þar kynni
að verða umtalað, — það er: að á fáum góðum fulltrúum
yrði völ, en sá galli yrði temporær, með tímalengdinni
bættist vel úr þessu? Menn mega þó ekki dæma þessliátt-
ar stiptanir, sem eru gerðar fyrir margar aldir eptir augna-
blikinu. Eg er enda á þeirri meiníngu, að samkomurnar
legðu miklu meiri skynsemi og þekkingu fram en menn
almennilega vænta. Á norðrlandi þekki eg ekki allfáa
menn i hvörri sýslu sem mundu reynast eptirþánkasamir
og orð þeirra mikilsmetandi. Pess er og að gæta, að um
íslenzk málefni skyldi lala. Aldrei lield eg íari vel fram
á íslandi fyrr enn það fær einhvörn miðpúnkt sem sam-
einar allt og gefur Nationaliteten Næring. Eg vona að tíð-
in geri þessa nauðsyn bera um siðir, þó að við verðum
þá máské dauðir. Sú landstjórnarskipun sem er góð og
nægileg í Danmörku er það ekki eins á íslandi. 1 Dan-
mörku mega embættismennirnir—sem ekki eru í collegiis
— gjarnan vera ópólitískir menn, réltar Contormaskinur,
því ekkert kemur eginlega uppá þá, nema kanské eitthvað
localt í allra þrengstu þýðíngu; Canselliið og Collegiin hafa
sína fíngr í öllu, og resolvera daglega í þvi sem sýslumenn
leggja úrskurð á á íslandi, [að] eg tali nú ekki um önnur