Andvari - 01.01.1914, Blaðsíða 147
Björn bóndi Einarsson,
Jórsalafari.
Fimm alda dánarminning.
Eftir
Janus Jónsson.
Á næsta ári (1915) eru liðnar fimm aldir, síðan
er sá maður andaðist, er einn yar göfgastur, ágæt-
astur og frægastur höfðingi á íslandi samtíðarmanna
sinna. Nafn hans hafa margir kunnað að nefna á
liðnum tíma, en það er eðlilegt, að fyrnist yíir menn,
er aldir renna, þótt allfrægir liafi verið og þjóðkunnir
höfðingjar. Það hefir oss íslendingum ávalt verið á-
nægjuefni, að minnast þeirra manna ágætra, er uppi
hafa verið á landi voru, og af annari hálfu er það
bein skylda vor, að halda á lofti minningu þeirra,
að eigi fyrnist yfir þá algerlega enn um sinn.
Björn Einarsson, Jórsalafari, er sá maður, er eg
liygg, að telja megi einhvern hinn ágætasta liöfðingja,
er verið hefir á landi voru, og einn frægastan tel eg
hann og ágætastan samtíðarmanna sinna fyrir margra
hluta sakir. Finnur biskup Jónsson reit æfiágrip
hans í kirkjusögu sinni, og segist gera það fyrir þá
sök, að eigi skuli minning hans niður falla, þessa