Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1949, Blaðsíða 29
aLMANAK
29
um út á móts við Hánefsstaðaeyri, var lagzt við akkeri og
legið þar það eftir var nætur.
11. júní. Klukkan 6 um morguninn, létti skipið aftur
akkeri. Þá var gott veður, en þoka mikil í lofti og á landi,
en létti ofurlítið upp frá sjónum, svo að sást til lands.
Þegar út kom úr Seyðisfjarðarmynni skall þokan saman
aftur. Um kl. 9 f.m. sáum við glóra í land; var okkur sagt
að það væri Gerpir, sá staður, er ísland gengur lengst til
austurs. Þá vorum við aðeins fáa faðma frá landi. Var
skipinu þá snúið nærri beint til hafs, og skipslúðrinum
blásið á 5 mínútna fresti. Var mér sagt, að það væri gert,
bæði til þess, að vara önnur skip við og einnig til þess að
vita hve langt við værum frá landi, því að bergmál frá
fjöllimum heyrðist, ef maður væri of nálægt ströndinni.
Hægt mjög og gætilega var farið, en loksins tókst þeim
þó að hitta á Reyðarfjörð, og á Eskifjörð vorum við
komnir kl. 2 e.m. Hér fórum við Tóti á land, bara að
gamni okkar, því að hér auðvitað þektum við enga mann-
eskju. Klukkan 10.30 um kvöldið fór “Thyra” okkar aftur
af stað, og nú átti að taka beint strik til Færeyja.
Á Seyðisfirði sté á skip maður nokkur, Loftur að
nafni, Jörundsson, úr Hrísey á Eyjafirði, og ætlar Loftur
þessi til Ameríku í annað sinn; hann hafði, nefnilega,
farið til Ameríku fyrir 6 árum síðan, dvalið um tíma í
Kaliforaíu, og siðar í Panama, við skurðgröftinn þar;
þaðan fór Loftur til Ástralíu og hefir verið þar, allt til
þess, að hann kom nú í vor heim til Islands. Loftur lét
vel af því að vera í Ástralíu, hafði verið hjá einum manni
nokkuð lengi, við smíðar, og fékk eitt pund sterhng (18
kr.) í kaup á dag, en svo þurfti hann að kaupa föt, fæði
og þjónustu, sem er víst nokkuð dýrt þar.
12. júní. Bjartviðri og vestan stormur, talsverður, er
á daginn leið. Þegar við komum á fætur um morguninn
var horfið land. Þenna dag lágumargirírúminu,sjóveikir,
því að alda var töluverð, og “Thyra” ruggaði mikinn.