Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1949, Blaðsíða 38
38
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
lítil og illa launuð svo hann treystist ekki til að hafa okkur
lengi, svo það varð úr að við fórum ofan á Innflytjenda-
húsið. Þar vom fáeinir landar fyrir, nýkomnir að heiman,
sem hvergi höfðu annarsstaðar höfði sínu að að halla.
Canadastjóm sá þeim fyrh fæði, og Baldvin L. Baldvm-
son var þar oftast á hverjum degi að reyna að ráðstafa
þessu fólki, útvega því vinnu o.s.frv. Um þetta leyti réðst
Tóti bróðir til bónda nokkurs um 20 mílur austur frá
Winnipeg, en eg, með nokkrum öðrum, fékk loforð um
vinnu á járnbraut, sem verið var að leggja frá Morris um
40 mílur suður frá Winnipeg og vestur til Argyle. En
þegar til Morris kom eða nokkurn kipp þar fyrir sunnan,
þar sem brautarendinn var þá, fengum við ekki vinnuna
og vorurn sendir til baka til Winnipeg næsta dag. Fór eg
nú aftur á Innflytjendahúsið, því ekkert amiað pláss gat
eg flúið til. Og þegar eg kom þangað var eg að verða
altekinn af einhverri veiki. Strax og Baldvin sá mig sím-
aði hann eftir sjúkravagni og eg var fluttur á spítalann.
Fékk eg nú að vita að eg hafði fengið mislingaveiki. Á
spítalanum lá eg 11 sólarhringa, var all-mjög veikur
fyrstu 3 eða 4 dagana, en úr því hresstist eg skjótt, og út
var mér slept á 11. degi. Eg átti 25 cent í peningum, sem
var í buxnavasa mínum, þegar eg kom á spítalann, en
þegar eg fékk föt mín um leið og eg fór þaðan, voru
centin horfin. Fór eg nú enn á ný ofan á Innflytjendahús.
Fáum dögum síðar réðst eg til bónda um 16 mílur austur
frá Winnipeg til tveggja mánaða fyrir 15 dollara á mán-
uði. Þetta var 14. ágúst. Hjá bónda þessum var eg hinn
tiltekna tíma, til 14. október. Ekki get eg sagt að eg væri
sérlega hrifinn af þessari minni fyrstu vist í sveit í Ame-
ríku; mikið að vinna, fæði fremur lélegt, og eg fákunn-
andi bæði í máli og vinnubrögðum, en karlinn, sem hét
Murray og var víst irskur, langt frá því að vera lipur. Svo
dróg hann af kaupinu fimm dollara af því að eg var las-
inn 2 síðustu dagana, fékk sting undir herðablaðið vinstra,