Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1949, Page 43
ALMANAK
43
búar og ættmenn þeirra hátíðlegt demantsbrúðkaup þeir-
ra með mikilli viðhöfn og mannfagnaði og virðuglegum
gjöfum; var það eitt hið alfjölmennasta samsæti sem sá,
er þetta ritar, eftir man á 12 ára þjónustutíma í Norður-
byggðum Nýja-Islands.
Heimilið á Kjarna
var jafnan fyrirmynd
að ljúfleik, háttprýði
og góðum siðum. Góð-
vildin, sem þar ríkti,
var sönn og yfirlætis-
laus, og átti engin af-
föll í sér fólgin. Sam-
bandið milli foreldra
og bama var innilegt
og hlýtt; urðu börn
þeirra góðir samverka
menn foreldra sinna;
létu sér eftir megni
annt um hag foreldra
sinna—og gerðu sitt til
þess, að elli þeirra
mætti vera eins indæl
og hún getur framast
verið.
Páll var einn af stofn-
meðlimum Geysirsafnaðar; vann hann árum saman dvggi-
lega og á affarasælan hátt að málum hans, með ást til mál-
efnis kristinnar kirkju og hógværð og góðvild samfara
mikilli festu, er gat sér vii'ðingu og tiltrú annara manna.
Trú þeirra hjónanna beggja var lotningarfull og sönn
og mótaði hugsunarhátt þeirra og heimilisbrag allan;
hún bar sér og jafnan vitni í hjálpfvsi og góðvild, sem
allir er þeim kynntust urðu varir við.
Kyrrlát gleði einkenndi heimilis brag þein-a; eiga böm
Páll Jónsson