Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1949, Page 92
92
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
kirkjufélagsins íslenzka heiðra Mrs. J. B. Skaptason í
Winnipeg með fjölmennu samsæti í tilefni af 70 ára afm-
æli hennar. Var henni afhent skrautritað ávarp frá sam-
bandinu og einnig kosin æfifélagi í Allsherjar Sambandi
únitariskra og annara frjálstrúarkvenna í Boston, í viður-
kenningar skyni fyrir störf sín í þágu kirkjufélags síns og
annara menningarmála.
Marz—Málverk eftir Árna Sigurðsson leikara hlaut
flest atkvæði sýningargesta á hinni árlegu sýningu Mani-
toba listamannafélagsins, sem haldin var í Winnipeg í
þeim mánuði. Málverkið var vetrarsýn og nefndist “White
Christmas” (Hvít jól).
Marz—Blaðafrétt lætur þess getið, að J. F. Frederick-
son hafi nýlega setið sjómála-ráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna í Genf í Svisslandi sem ráðunautur canadisku sendi-
nefndarinnar. Hann lauk prófi í sagnfræði á Toronto há-
skóla 1941 og hefir síðan skipað meiriháttar stöður í versl-
unar- og siglingamálum í Canada. Hann er sonur Mr. og
Mrs. Kári Frederickson í Toronto og sonarsonur hinna
kunnu landnámshjóna Friðjóns og Guðnýjar Friðriksson.
Apríl—Bíkisstjórn Islands og Stórstúka Good-Templ-
ara bjóða Dr. Sigurði J. Jóhannesson og frú hans í heim-
sókn til Islands á komandi sumri, en þau hjón gátu eigi
þegið það virðingarboð.
15. apríl—Kom út í Reykjavík, á vegum Iðunnarút-
gáfunnar, heildarútgáfa af kvæðum Guttonns J. Gut-
tormssonar skálds, er Arnór Sigurjónsson hafði búið undir
prentun. Um sama leyti var Guttormur skáld sæmdur
skáldalaunum af hálfu Alþingis.
Apríl—Um þær mundh' var J. J. Swanson framkvæmd-
arstjóri endurkosinn formaður nefndar þeirrar í Winni-
peg, sem annast um endurbætur húsa og íbúða fyrir hönd
borgarmnar.
10. maí—Efndi “Icelandic Canadian Club” til hljóm-
leika í Winnipeg þar sem sungnar voru eða leiknar á hljóð-