Búnaðarrit - 01.01.1906, Page 13
Eftir búnaöarþingið
og:
alþing1! 1905.
Búnaðarþingið 1905 átti að haldast síðari hluta júní-
mánaðar, og hafði félagsstjórnin ætlað sér að stefna full-
trúunum saman um miðjan mánuðinn, en fulltrúarnir
að norðan og auslan, sem jafnframt eru alþingismenn,
gátu eigi komið fyr en með þingmannaskipinu í lok júní-
mánaðar, og varð því að fresta búnaðarþinginu, og stóð
það yfir dagana frá 26. júní—4. júlí.
Þetta síðasta búnaðarþing hafði því enn naumari
tíma til vinnu, en búnaðarþingin 1901 og 1903, þegar
þess er gætt, að flestir fulltrúarnir þurftu samhliða að
rækja alþingisstörf. Það létti auðvitað töluvert fyrir
störfum búnaðarþingsins, að fulltrúarnir voru samþykkir
tillögum stjórnarnefndar um fjárhagsáætiunina árin 1906
og 1907, að því leyti, að engir nýir gjaldliðir voru teknir
upp, og engir gjaidliðir voru færðir niður fyrir stjórnar-
nefndinni, en búnaðarþingið fór fram á töluvert aukinn
styrk úr landssjóði, og skyldi mestöll sú viðbót ganga til
ræktunarfyrirtækja.
Auk aðalhækkunarinnar t.il ræktunarfyrirtækja voru
4 liðir hækkaðir um 400 hver, eða samtals 3200 kr„
bæði árin; voru það kynbætur, námsstyrkur, hússtjórn-
arkensla og ýmisleg útgjöld. Af öllum gjaldliðunum er
það námsstyrkurinn, sem stjóm félagsins á örðugast með
að láta bera sig, svo stórkostlega hefir aukist ásóknin
að komast að ýmiskonar búnaðarnámi erlendis.
Búnaðarþingin 1901 og 1903 voru haldin í lok al-
þingis og eftir að því var slitið, og höfðu fulltrúarnir þá
fyrir sér tii ráðstöfunar fjárupphæðina, sem alþingi hafði