Búnaðarrit - 01.01.1906, Page 33
BÚNAÐARRIT
29
400 fjár. Kýr eru jafnaðarlegast 2—3 á bæ. Hestar
fremur fáir. Áður fyr var meðferð þar á fé alt annað
en góð. Sem dæmi þess er getið urn það, að 1837 var
ekkert fjárhús til í Stafafellssókn, er tekur yfir Lónið.
Nú er öllu fé ætlað þar hús og hey. í allri sveitinni
eru 60 kýr. Árið 1703 voru þar 270 íbúar alls; en nú
eru þar nálægt 170 manns. Tún eru þar vjðast hvar
ógirt, og eigi vel hirt. — Ekkert haughús í sveitinni.
Etigjar eru þar góðar, og mest af þeim fiæðiengi. Þegar
flæðir á entrjarnar, þá er það með þeim hætti, að ós, sem
nefnist Bæjarós stiflast. Það er nokkur hluti af Jökulsá
í Lóni er fellur út um ósinn. Þegar svo ósinn stiflast
þá fara engjarnar í flæði, þvi sandgárinn ofan við Lónið,
er sveitin dregur nafn af, heldur vatninu inni. Á vorin
í júní er ósinn ræstur fram, og fara í það 20—30
dagsverk. Komi það fyrir, að ósinn ekki stiflist eða
að hann rifi sig fram eftir það, að hann hefir stiflast,
þá er grasbrestur á engjuntim óumflýjanlegur.
Búnaðarfélag er í sveitinni og eru í því 11 bændur.
Formaður þess er Sigurður Jónsson bóndi og búfræðingur
á Reyðará. Skilvindur eru þar á 5 bæjum og eldavélar
á mörgum heimilum.
Útræði er þaðan seinni part vetrar og að vorinu og
fiskast oft vel. Silungsveiði er þar og mikil í Lóninu,
og selveiði á 3 eða 4 jörðum.
Nesin eða Nesjahreppur liggur milli Almannaskarðs
og Hornafjarðarfljóts. — Af Almannaskarði, sem er 535
fet yfir sjó, er einhver hin fegursta útsjón er gefur að
líta. Sézt þaðan yfir Nesin, Skarðsfjörð og Hornafjörð,
og hinar möigu eyjar á Skarðsflrði. Þá hefir maður og
útsjón yfir Mýrarnar og Suðursveit, og alla skriðjöklana
er ganga niður á láglendið. í vestri blasir við Öræfa-
jökull, hár og tignarlegur.
í Nesjahreppi eru búendur nálægt 30 alls, þar af eru
10 í sjálfsábúð. — í sveitinni eru um 100 kýr, og eiga
flestir 2—4; flestar eru þær 6 á bæ. Af sauðfé eiga