Búnaðarrit - 01.01.1906, Side 44
40
BÚNAÐARRIT
ekki endurnýjuð. Sýslunefnd Vestur-Skaftafellssýslu hafði
lofað til þessa verks 1250 kr. og hreppurinn öðru eins.
— Út af þessu loforði hreppsins, reis seinna upp óá-
nægja meðal hreppsbúa; töldu þeir hreppnum um megn
að leggja fram svona mikið fó, og auk þess hafa þar
margir ótrú á fyrirtækinu. Flestir vilja helzt að ekkert
só gert, og vilja heldur ekkert á sig leggja sjálflr til þess
að stemma stigu fyrir eyðileggingunni.
Á hinn bóginn er því eigi að leyna, að áveita sú,
er ráðgerð hefir verið, hlýtur að kosta geysi mikið, ef
hún á að verða að nokkru liði. Sveinbjörn Ólafsson
áætlaði að aðfærsluskurðurinn — að eins sjálf vatnsleiðsl-
an austur að sandinum — kostaði eins og áður er getið
8828 kr. — En svo heflr eigi verið gerð áætlun um það,
hvað það mundi kosta að veita vatninu um sandinn, eða
það af honum, er það nægir til að fara yfir. Sennilega
mundi það kosta alt að því annað eins. Ef áveitan eða
þessi sandgræðslutilraun á að gera það gagn, sem ætl-
ast er til að hún geri, og vatnsmegnið leyflr, þá býst eg
við, að kostnaðurinn yrði eigi undir 15000 kr.
Austan Eldvatnsins er og sandágangur mikill
á Stsinsmýrar-jarðirnar, einkum þó Syðri-Steinsmýri.
Til þess að hefta það sandfok eða hindra það að
jörðin fari algjörlega í auðn, só eg eigi önnur ráð en
þau að stífla svo nefndan Oarðlœk, nálægt Syðri-Steins-
mýri, og veita vatninu úr honum yfir engjar jarðarinnar
og á sandinn. Stíflan í lækinn mundi kosta 800 kr.
Álftaverið er lítil sveit; jarðirnar eru 9 en búendur
16. í sveitinni eru um 50 kýr en 900 ær. Flestireða
allir komast þar sæmilega af, og sumir búa mjög laglega,
og þar á meðal presturinn þeirra, séra Bjarni Einarsson
á Mýrum. Búnaðarfélag er þar í sveitinni, og eru í því
13 búendur. Árið 1904 skilaði það 175 dagsverkum.
Þar er og bindindisfélag eða góðtemplarstúka með 40
íélögum, og hafa þeir komið sér upp laglegu fundahúsi.
Álftaverið hefir ekki fremur en aðrar sveitir í Vest-