Búnaðarrit - 01.01.1906, Síða 46
42
BÚNAÐARRIT
þess eru 66. 1904 framleiddi búið 14,000 pd. og svip-
að mun smjörið hafa orðið síðastliðið sumar.
Nautgripafélag er þar einnig. Eru í því um 70
bændur með nálægt 270 kýr.
Húsagerð eða byggingar hafa batnað þar mjög mikið
hin síðari ár, bæði að því er snertir bæjarhús og pen-
ingshús. í Dyrhólahreppi eru 10 íbúðarhús úr timbri,
og í Hvamshreppi eru þau 12, fyrir utan húsin í Vikur-
kaupstað. Þá er Magnús Finnbogason í Reynisdal að
búa sig undir að byggja hús úr steyptum steinum, eftir
fyrirsögn verkfræðings Jóns Þorlákssonar, — Fjósbaðstofur
eru á flestum bæjum lagðar niður í Mýrdalnum, og þar
sem þær eru, þá er gengið mikið betur frá þeim en áður
var. — Eldavélar eru mjög víða, og skilvindur hjá öllum
þeim, sem eru í smjörbúinu við Deildá. — Fjósin hafa
einnig batnað í seinni tíð. Þau sá eg best hjá Guðmundi
hreppstjóra á IIvoli;— nýtt fjós með steinsteyptum flór
og gangstétt — og hjá Ólafl Jónssyni búfr. á Sólheimum.
Barnaskólar eru 2 eða 3 í Mýrdalnum, Good-Templar-
stúkur 2, og lestrarfélag.
Yflr höfuð er áhugi á félagsskap og verklegum fram-
kvæmdum meiri í Mýrdalnum en víða annarstaðar, og
það er sérstaklega lofsvert. hve skjótum og góðum stakka-
skiftum þeir hafa tekið Mýrdælingar síðustu árin. Sá
maður, sem einna mestan og beztan þátt heflr átt í
þeim breytingum, er orðið hafa þar, er Guðmundur Þor-
bjarnarson hreppstj. á Hvoli, maður mjög duglegur og
áhugasamur um alt, er að gagni má koma. Hann heflr
búið á Hvoli síðastliðin 10 ár, og á þeim árum hefir hann
aukið túnið um 8 dagsláttur, hlaðið eða gert girðingar
um tún, engi og matjurtagarða 980 faðma á lengd, skurði
til vatnsveitinga 400 faðma, flóðgarða 580 faðma o. s. frv.
Mýrdælir eru menn gestrisnir og hjálpfúsir, enda er
það einkenni Skaftfeliinga yflr höfuð, bæði að sögn og
sannindum. Sigurður Sigurðsson.