Búnaðarrit - 01.01.1906, Side 76
72
BÚJSAÐARRIT
Sama ár, 1889 er stofnað pöntunarfélag Skagfirðinga.
Frá því það var stofnað og til 1903 hefir það flutt inn
vörur fyrir 60,000—80,000 kr. á ári. Árið 1890 eru
stofnuð Stokkseyrarfélagið og Kaupfélag Reykjavíkur.
Þetta síðast talda félag er í raun og veru kaupfélag, og
hefir það jafnan verzlað við innlenda kaupmenn í stór-
kaupum. Árið 1903 keypti það vörur fyrir 22,200 kr.
Árið 1894 er stofnað „Kaupfélag Norður-þingeyinga",
og 1895 er stofnað Pöntunarfélag Húnvetninga. Um og
eftir aldamótin síðustu fjölgar svo félögunum nokkuð, og
árið 1903 eru þau 22 alls hér á landi og skiptast í 140
deildir, stærri og minni. Fólagar alls nálægt 5,800.
Innfluttar vörur það ár tii félaganna námu með félags-
verði nálægt 600,000 kr. Öil verzlunar upphæð félag-
anna heflr þá numið nálægt 1,2 mill. kr. Til saman-
burðar skal þess getið, að sama ár námu aðfluttar vörur
12,068,000 kr. og út fiuttar 11,292,000 kr. eða til sam-
ans 23,360,000 kr. Eftir því heflr þá verzlun pöntunar-
féiaganna numið tæpum 20°/0 af allri verzlun landsins
fetta umgetna ár.
Auk þeirra félaga, er nefnd ha.fa verið, má geta
þess, að nálægt 1890 og eftir það, voru stofnuð pöntun-
arfélög t. d. pöntunarfélag ísfirðinga og tteiri sem nú eru
liðin undir lok, en önnur komin i þeirra stað.
Aðal tiigangur þessara félaga, sem ýmist eru kölluð
kaupfélög eða pöntunafélög, er í stuttu máli þessi:
1. að ná svo góðum kaupum á útlendum vörum sem
unt er
2. að efla vöruvöndun
3. að koma í veg fyrir alla skuldaverzlun
4. að draga verzlunararðinn inn í landið
5. að fækka milliliðum i verzluninni
Þetta var og er tilgangur „Kaupfélags Þingeyinga",
og flest þa.u félög er síðan hafa verið stofnuð, hafa sett
sér sama markmið eða svipaðan tilgang, enda er sýni-
legt, að fólögin hafa notað lög „Kaupféla.gs Þingeyinga",