Búnaðarrit - 01.01.1906, Síða 81
BÚNAÐARRIT
77
Ég vil að eins taka það fram, að það er afaráríðandi, að
sölufélögin, hverju nafni sem þau nefnast, vandi vörur
sínar sem bezt, og flokJd þær eftir gœðum.
2. Shddlaus verzlun er annað meginatriðið í sam-
vinnufélagsskapnum. Öll skuldaverzlun er banvæn, bæði
einstaklingum og þjóðinni í heild sinni. Af skuldaverzl-
uninni leiðir verðhækkun á allri vöru, sem sá verzlar
með er lánar. Skuldaverzlunin hefir og í för með sér
aukin störf fyrir verziunina, og um leið aukinn kostnað
við rekstur hennar. Ennfremur venur skuldaverzlunin
menn á óskilríki í viðskiftum og eyðslusemi um skör
frnm. Fyrir því þarf og á það að vera. ófiávíkjanleg
regia í kaupfélögunum að lána ekkert út, en gæta þess
jafnan að hönd selji hendi. Sé vikið frá þeirri reglu, þá
verður óhjákvæmilega að gera samning við þann sem
lánað er, um greiðslu iánsins og vöxtu af því, og lána
þó að eins til stutts tíma.
3. Félögin eiga að kaupa. inn vörur sínar gegn
borgun út í hönd. Ef vörurnar eru teknar að iáni, þá
rýrir það verzlunarágóða félagsins. Einnig skerðir það
tiltrú féiagsins út á við, og veikir félagsskapinn inn á
við, og stofnar honum þar með i hættu. Það seinkar
ennfremur viðskiftunum, hækkar verð vörunnar og gerir
félagið háð sínum viðskiftamönnum, sem varan er keypt
hjá. Alt þetta verður að forðast, og það getur bezt orðið
með því að vörurnar séu keyptar inn fyrir borgun út í
hönd.
4. Samábyrgðin er ein af máttarstoðum samvinnu-
fólagsskaparins. Er hún í því innifalin að einn ábyrgist
fyrir alla og allir fyrir einn. Innbyrðis í félögunum er
svo þessari ábyrgð jafnað niður á hvern einstakan félaga,
annaðhvort þannig, að allir bera jafna ábyrgð, eða þá,
að henni er jafnað niður eítir því, hvað hver hetir verzl-
að mikið í félaginu. Stundum er og ábyrgðinni jafnað
niður eftir öðrum mælikvarða. í smjörbúafélögunum er
henni jafnað niður eftir kúgildatölu félagsmanna, eða