Búnaðarrit - 01.01.1906, Page 107
BÚNAÐARRIT
103
steypa veggnum, ef alt er vandað að öðru leyti. í þessi
efstu lög er gott að hafa stóra og vel skorna rofhnausa
úr grónum þökum ef til eru.
Til þess að fá vegg vel beinan þegar frá líður, er
vissara að láta bera dálítið minna á hornunum, nefnil.
láta vegginn nýhlaðinn vera örlítið bogadreginn ei’ upp
eftir dregur, sá ávali hverfur smátt og smátt. Kemur
það tii af því, að sjaidan er svo vel troðinj moidin í
veggnum að hún láti ekki undan hleðslunni um miðbik
veggsins, hornhleðslurnar styðja á móti, svo þar gætir
þess iítið eða ekki.
Mjög áríðandi er að sjá við því að vatn geti runnið
í veggina; þarf þess vegna að vera góður haili út af
þeim að ofan og þeir vandlega þaktir.
Þegar refta skal á veggi, verður að hlaða þá úr
grjóti og torfl upp úr. Er þá sjálfsagt, að láta veggina
dragast að sór utan og innan sem jafnast frá undirstöðu
og hafa t.orfið sem allra þynnst að verður. Yel þarf að
búa um svo raft.aendandarnir grafist ekki ofan í veggitia
og spilli þeim. Bezt mun að hafa vegglægju undir röft
unura á veggnum og flata hellusteina til og frá undir
henni, svo síður fúni.
Til þess að spara viði, má vel hafa dálít.ið þrep upp
í veggjunum, til þess að láta stoðir st.anda á, einkum
í hlöðum og fjárhúsum. Velja verður þá lögulega steina
eða þykkar hellur undir st.oðirnar, sem látnir sóu ná vel
innundir hleðsluna í efri hluta veggsins. Grjót verður
að vera 1 þeirri hleðslu, sem stoðirnir standa á. Svo
væri líklega bezt að hlaða veggiim upp frá þrepi úr
hnaus, vegna þess, að þyngslin yrðu þá minni, srm
lægju á neðri hluta veggsins, og sem koma mest. utan
vert á hleðsluna.
Gott er að hafa dyrakampa fleygna að utanverðu.
Fennir þá síður inn í húsin. Skörp horn við dyr kljúfa
veðrið og mynda hringslátt við dyrnar, en séu þau sljó,
fer veðrið að mest.u fram hjá.