Búnaðarrit - 01.01.1906, Page 119
BÚNAÐARRIT
115-
Eins og að undanfömu hafa ýmsir fengið útsæði
af þeim kai töfluafbvigðum sem bezt hafa reynst 1 gróðrar-
stöðinni og alt af er hér á boðstólum fræ af beztu rófna-
tegundunum. Sama er að segja um grasfræið.
í undirbúningi eru gróðursýnisstaðir fyrir sáðsléttur
á þessum stöðum: Hvanneyri, Sauðafelli, Birtingaholti,
T’jórsárbrú og Útskáium. Búnaðarfólagið veitir nokkurn
styrk til þessa. Staðirnir voru valdir, fyrst og fremst
með tilliti til þess, hvernig þeir eru í sveit settir, þar
sem fjölfarið er, og þar næst var það haft í huga, að
þeir væru hjá þeim mönnum, sem trúa mætti til að
rækta landið á þann hátt sem fyrir þá yrði lagt. Sýnis-
staðirnir eru 2 dagsláttur á stærð, valdir i þurru mó-
lendi, hallalitlu. Fyrsta sumarið verður þar ræktað bygg
eða hafrar, annað sumarið rófur, ef jarðvegurinn er
orðinn svo myldinn, annars bygg aftur. Þriðja sumarið
hugsum vér oss að sá megi grasfræi þar sem jarðvegur-
inn heflr verið iaus í sér, annars tæplega fyr en fjórða
sumarið. Grasfræið verður sambland af þeim grasteg-
undum sem hér reynast bezt.
Hitamælingar þær, sem hér á eftir eru tilfærðar,
eru dregnar út úr skýrslu ungfrúr Sigríðar Björnsdóttur
í Reykjavík. Meðalhiti dagsins er reiknaður eftir hita-
stigum kl. 8 árd. og kl. 2 og 9 síðd. í fyrstu tölulínu
er meðaltala af meðalhita daganna í hverjum mánuði..
í annari tölulínu er sýnt meðaltal dagshitans þegar hann
er minstur og í þriðju tölulínu meðaltal dagshitans þeg-
ar hann var mestur.
Hita- og úrkomutafla sumarið 1905.
Maí Júní Júli Ág. Sept. Okt.
Meðal hiti 7.4 10.8 11.3 10.6 8.3 5.9
Minstur meðal hiti . , 3.5 7.5 8.2 8.5 7.0 1.0
Mestur meðal hiti . . 12.8 13.9 14.5 12.4 11.0 11.0-
Úrkoma, í milli metrum 34.9 39.7 55.1 27.4 107.6 96.7
8*