Búnaðarrit - 01.01.1906, Page 129
BÚNAÐARRIT
125
Móti 100 pundum af salti er notað 1 pund af salt-
pétri.
Lögurinn er mæidur með því að setja mælirinn
ofan í hann, og sjá menn þá skjótt, hvernig mælirinn
stigur í leginum, eftir því sem hann þyngist eða meira
■sait er látið í liann. Leginum er helt á saltkjötið þá er
toúið er að salta það niður í tunnu og ríður á að hún
«é algei'iega held.
Salt það, sem nota á, er hið svo nefnda Liverpool
*>alt (eða Middlesborough-salt).
Til þess að gera saltkjötið sem fegurst útlits, er í
'slátrunarhúsunum hér í landi sprautað saltpétrinum inn
í það, og er höfð vól til þess. í vetur hafa menn í
Óðinseyjarslátrunarhúsinu fundið upp nýja aðferð til þess
að sprauta inn saltpótri í svínakjöt. Aðferðin við slátrun
•svína er öll önnur en á sauðfé. Þá er búið er að drepa
svínið, er tekið af þvi hárið. Þá er því er lokið, hafa
menn fundið upp á því að opna þegar á því brjóstið og
vinstra hjartahólfið og sprautað inn í hjartað saltpétri,
svo að hann fari um allar æðarnar út um likamann.
Við þetta hefir kjötið orðið svo fagurt útlits, að fyrir
pundið fékst í lieilli vigt 05 aurar í stað þess að áður
fengust 55—56 aurar fyri.r pundið. Svínakjöt þetta er
selt í Berlín.
Eg hofi getið um þetta sein dæmi upp á það, hve
mikla stund menn erlendis leggja á að kjötvaran iíti vol
lít, og lil að sýna, hve mikla þýðingu það hefir. En
kjöt það, sein íslendingar senda til annara landa, má
•eigi líta ver út en kjöt það, sem það á að keppa við á
markaðinum.
ÞórðUr (Tunnarsson, hreppstjóri, frá Höfða í Höfða-
hverfi við Eyjafjörð, kom liingað á útmánuðum i vetur.
Hann kynti sér hvernig brytja á kjöt, og mun hann fús,
á að sýna mönnum það. Einnig eru þeir Ingimar Sig-
urðsson fr;V Drallastöðum í Fnjóskadal og Vigfús Gutt-
ornisspn íra Geitagerði í Fellum, sem dvöldu í Esbjerg