Búnaðarrit - 01.01.1906, Síða 139
BÚNAÐARRIT
135
Reikningar rjómabúanna.
Öll rjómabúin skifta smjörinu fyrir hverja viku
millum hluthafanna eftir rjómamagni hvers um sig og
feiti % rjómans. Peningarnir eru venjuiega lagðir inn i
bankann jafnóðum og þeir koma frá seljanda, og teknir
þaðan aftur við lok starfsársins. Smjörmagninu er síðan
deilt í andvirði smjörsins og meðalverð þess fundið.
Peningaupphæð sú, sem hver hluthafl fær við lok reikn-
ingsársins, er því smjörpundatala sú, er honum ber marg-
földuð með meðaiverði smjörsins að frádregnum kostnaði.
Skifting á andvirði smjörsins á þennan hátt hefir verið
góð, og getur verið góð, á meðan að búin starfa ekki
nema 2—3 mánuði. En eftir þvi sem starfstími búanna
lengist, nær yfir stærri og stærri hluta af árinu, verður
þessi aðferð ónákvæm og óréttlát.
Á meðan mjólkurbúin starfa að eins 2—3 mánuði
að sumrinu, má gjöra ráð fyrir, að hlutfallið millum
rjómamagnsins hjá hinum ýmsu hluthöfum haldist nokk-
urnveginn óbreytt, allan tímann, þannig, að ef A. t. d.
hefir 50 pd. af rjóma í júní, þá sé rjómamagn hans í
ágúst 25 pd., og ef B. hefir 30 pd. í júní sé rjómamagn
hans í ágúst 15 pd. Þótt smjörið, sem framleitt er í
ágúst, seljist venjulega mikið betur en smjör framleitt í
júní, má það óhætt reikna með meðalverði smjörsins.
Ef búin starfa þar á móti frá því í maí og þangað til í
október breytist þetta. A. hefir ef til vill að eins vor-
bærar kýr og engar ær í kvíum, en B. engar vorbærar
en margar ær. Hafi nú A. t. d. 50 pd. af rjóma á dag
í maimánuði með 10 pd. smjörs eða 70 pd. á viku, sero
selst á 70 aura pundið, á hann að íá 49 kr. fyrir sítt-
smjör þá viku. Og ef vér gjörum ráð fyrir að hann
iiafi 10 pd. af rjóma á dag í ágúst með 2 pd. af smjöri
eða 14 pd. um vikuna, sem selst á 90 aura pd.=12 kr.
60 aura, er smjörmagn hans í nefndar 2 vikur 84 pd.,