Búnaðarrit - 01.01.1906, Page 232
226
BÚNAÐARRIT
vinn og erfið fyrir einn og hins vegar þarf og að hafa
stöðugt eftirlit á sjálfri skógarstöðinni nokkurn veginn
jafnt á öllum ársins tímum.
Úr þeim tveimur skógum, sem nú hítfa verið keyptir,
má fá nægilegt fræ og ungviði á mörg hundruð dag-
siáttur, og væru 4 skógar af svipaðri stærð og þeir koyptir
í viðbót, mundi nægilegt fræ og ungviði vera fyrir hendi
að 2—3 árum liðrmm til þess að byrja á skóggræðslu
í stórum stíl.
Að endingu nokkur orð um skógræktina sjálfa. Hin
síðustu 6 ár hafa tilraunir verið gerðar með ýmsar út-
lendar trjáplöntur, og þó sumar þeirra virðist þrífast vel
er engin þeirra nægilega trygg þegar ræða er um skóg-
græðslu í stórum stíl; annað mál er það, að halda verður
áfram tilraunum með útlendar plöntur í smáum stil.
En það gerir minna til þó ekki sé auðið enn að taka til út-
lendra tegunda, því innlenda björkin er áreiðanlega trygg
til að framleiða nægilega mikið af góðu fræi og ungviði.
Með því að jarðvegurinn er mjög smágerður og loðir
lítt saman, er hætt við, að ungplöntur, sem gróðursettar
eru í pælda jörð, lyftist upp í frostum og deyi þá eða
fái verulegan hnekki, eg hygg því að bezt sé, að sá og
gróðursetja ungplöntur i ópæida jörð. Að minni hyggju
ættu ungviðisreitirnir einnig að vera á ópældri jörð í
langrákum inni í kjörrunum; þar ætti að hafa 1 eða 2
ættliði, er síðar mætti flytja burt og gróðursetja ann-
arsstaðar. Smámsaman mætti yngja kjörrin upp, með
því að láta 2. eða 3. ættliðinn vera kyrran á staðnum
og vaxa þar framvegis. Auðsætt er að þá væri réttast
að byrja þar sem kjarrið er lélegast. Hringavaltara væri
gott að hafa til að fela fræið í inold.
Það ætti að byrja á þessu verki svo fljótt sem mögu-
legt er, svo auðið væri að verða við hinni sívaxandi
eftirspurn eftir ungviði í lystigarða og skjólreiti við kaup
staði og bæi. Að því er stofnsetning ungviðisreitanna
snertir, æt.last eg til, að að eins só tekið tillit til íslenzku