Búnaðarrit - 01.01.1906, Síða 259
BÚNAÐAERIT
253
Lánið getur orðið veitt alt að hinni áætluðu upp-
hæð, og getur helmingur þess fengist útborgaður að af-
liðnum fardögum það ár, sem jarðabótin á að vinnast
að fullu. Þegar verkinu svo er lokið, sem verður að
vera gert sama ár sem fyrri helmingur lánsins er tek-
inn, skal gefa glöggan reikning yfir kostnaðinn, sem orð-
ið hefir við það, og hafi úttektarmenn vottað á reikn-
inginn, að þeir álít.i hann sanngjarnan og að verkið sé
vel af hendi leyst, verður siðari hluti lánsins útborgað-
ur, enda fari það ekki fram úr kostnaðinum.
Lánið endurborgist með V10 á ári fyrstu fimm far-
dagaárin eftir að það er tekið, en úr því með ^/20 á
ári, þannig, að það sé að fullu endurborgað eftir 15 ár.
Jarðabótinni skal jafnan vel haldið við og henni
skilað við prestaskifti í góðu standi eða með fullu álagi.
7. gr.
Þeir sem sækja um styrk til lífsábyrgðarkaupa tii
viðbótartryggingar lánum til ábýliskaupa, skulu skýra frá
hvernig jarðakaupum þeim er varið, sem urn er að ræða,
og senda samskonar vottorð frá sveitar- eða bæjarst.jórn,
sem um er rætt í 5. gr. Enn fremur skal umsækjandi
skýra frá, hve há sú æfilanga lífsábyrgð er, sem hann
vill kaupa og upphæð iðgjalda, sem og hvort hann ætl-
ar að ijúka þeim á einu eða á tveim eða þremur árum.
Styrkurinn veitist eigi með minni upphæð en 50 kr. í
senn, og eigi með hærri upphæð en helming iðgjald-
anna, alt að 300 kr alls; hann er og bundinn við að
Hfsábyrgðin sé keypt í iífsábyrgðarstofnun ríkisins.
8. gr.
Þeir sem öðlast vilja verðlaun af vöxtum Ræktun-
arsjóðsins fyrir atorku, hagsýni og eftii’breytnisverðar
nýungar í landbúnaði, skulu senda hlutaðeigandi sýslu-
nefnd eða bæjarstjórn bónarbréf um þetta áleiðis til stjórn-
arráðsins, og skal bónarbréfinu fylgja vottorð tveggja
áreiðanlegra manna um að rétt só sagt frá í bónarbréf-