Hlín - 01.01.1953, Page 36
34
Hlín
MÓÐURMINNING.
Þorbjörg Guðmundsdóttir,
húsjreyja að Grasgeira í NorðurÞingeyjarsýslu.
Fædd 11. september 1870, dáin 9. apríl 1949.
Hún var fædd að Klifshaga í Öxarfirði 11. sept. 1870. —
Foreldrar hennar voru þau hjónin, Kristín Bjarnadóttir,
af Bukksætt, og Guðmundur Þorvaldsson, lireppstjóra, að
Klifshaga í Öxarfirði. — Hún var elst af fjórum börnum
þeirra lijóna, og mun hafa þótt snemma vel greind og
bókhneigð, mun hafa lesið húslestra í heimahúsum löngu
innan fermingar. — Nokkrar vikur naut hún tilsagnar
hins ágæta alþýðufræðara, Guðmundar Hjaitasonar. —
Síðar var hún við nám tvo vetur í kvennaskólanum að
Laugalandi í Eyjafirði, undir handleiðslu frú Valgerðar,
þeirrar merku lærdómskonu. — Það sagði mjer löngu
seinna frú Jóhanna að Bægisá, dóttir frú Valgerðar, að
móðir sín hefði talið móður mína einna best gefna af
sínum neinendum, enda liefði þar farið saman einstakt
minni, góður skilningur og afburða dugnaður.
Eftir veru sína að Laugalandi vann hún öll venjuleg
verk lieima að Klifshaga, og auk þess fjekst lnin við fata-
saum heima og víðar í sveit sinni, og einnig á vetrum við
barnakenslu, og þótti livorttveggja vel farnast — Hún
unni sveit sinni mjög, og ákvað mjög ung að veiða sveita-
kona: Vinna að ræktun og framförum innan sinnar eigin
sveitar. — Hún mun, áður en hún fór að Laugalandi,
hafa verið heitbundin ungum manni í sveit sinni, og þess
vegna ekki getað tekið bónorði unga mentamannsins, er
hún kyntist þar, og varð seinna þjóðfrægur maður. —
Unnustan misti hún mjög snögglega. Hann dó úr lungna-
bólgu eins og svo margir menn á besta aldri á þeim árum.
Þetta var henni mikið áfall, ekki síst þar, sem þau ekki
voru opinberlega trúlofuð ,og hún gat því ekki látið